Fara á efnissvæði
Frétt

Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í Gagnreyndri heilsu

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tók þátt í kynningarfundi fyrir hagsmunaaðila um Gagnreynda heilsu sem haldinn var í Reykjavík 6. október. Verkefnið er samstarfsverkefni á landsvísu sem miðar að þróun, staðfærslu, innleiðingu og viðhaldi klínískra leiðbeininga, gæðastaðla og gæðavísa í íslensku heilbrigðiskerfi.

Embætti landlæknis og heilbrigðisráðuneytið vinna að verkefninu í samstarfi við NICE International og aðra lykilaðila. Markmið verkefnisins er að efla notkun gagnreyndrar þekkingar í heilbrigðisþjónustu og stuðla að samræmdri og öruggri þjónustu um allt land.

Helga Pálmadóttir, sviðstjóri fagsviðs hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, situr í stýrinefnd verkefnisins fyrir hönd félagsins og tók þátt í pallborðsumræðum á fundinum. Þar fjallaði hún meðal annars um hlutverk félagsins í verkefninu og mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar taki virkan þátt í gerð og þróun klínískra leiðbeininga.

Í máli Helgu kom fram að hjúkrunarfræðingar búi yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem nauðsynleg sé við þróun klínískra leiðbeininga. Jafnframt hafi stéttin sterka stöðu til að leiða og styðja við innleiðingu þeirra í klínísku starfi um allt land.

Fyrsta viðfangsefni Gagnreyndrar heilsu er staðfærsla klínískra leiðbeininga frá NICE um meðferð fullorðinna einstaklinga með sykursýki af tegund 2. Með þessu fyrsta verkefni er lagður grunnur að markvissri þróun og innleiðingu gagnreyndrar heilsu á Íslandi, sem mun nýtast við uppbyggingu fleiri verkefna og styrkja gæði heilbrigðisþjónustu til framtíðar.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefnum Gagnreynd heilsa.