Fara á efnissvæði
Frétt

Hjúkrunarfræðingar eiga rétt þegar upp koma alvarleg atvik

Hjúkrunarfræðingar eiga rétt þegar upp koma alvarleg atvik og eru minntir á að leita til félagsins þegar slík atvik koma upp.

Í ljósi alvarlegra frétta af Heilbrigðisstofnun Suðurlands vill Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga minna alla starfandi hjúkrunarfræðinga á að þeir eiga ákveðin réttindi þegar kemur að alvarlegum atvikum á heilbrigðisstofnunum. Félagið hvetur hjúkrunarfræðinga til að hafa samband þegar alvarleg atvik eða grunur um slík tilvik koma upp. Hlutverk félagsins er að standa vörð um hagsmuni félagsfólks, með öryggi sjúklinga að leiðarljósi.

Árið 2024 tóku gildi lög um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika. Markmið laganna er að auka öryggi sjúklinga, efla öryggismenningu innan heilbrigðiskerfisins og fækka alvarlegum atvikum. Einnig er lögunum ætlað að skýra og auka réttaröryggi heilbrigðisstarfsfólks og bæta þannig starfsumhverfi þeirra.

Með lögunum er hægt að gera heilbrigðisstofnanir refsiábyrgar í stað einstaka heilbrigðsstarfsfólks, þau koma þó ekki í veg fyrir að hægt sé að sækja heilbrigðisstarfsfólk til saka þegar um ræðir alvarleg atvik eða röð alvarlegra atvika. Félagið gerði á sínum tíma ítrekaðar athugasemdir við frumvarpið, þar á meðal að löggjafinn átti sig ekki á samspili óhóflegs álags og mönnunarvanda við alvarleg atvik. Í heilbrigðiskerfi dagsins í dag er víða pottur brotinn þegar kemur að starfsaðstæðum, álagi og mönnun og veltir félagið upp þeirri spurningu hvenær komið sé að því að gera heilbrigðisstofnanir refsiábyrgar þegar atvik koma upp.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur í áraraðir barist fyrir bættu starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga til að gera þeim kleift að veita skjólstæðingum sínum örugga hjúkrun. Betra starfsumhverfi felur í sér nægjanlegt fjármagn, rétta mönnun hjúkrunarfræðinga, nægjanlegan hvíldartíma og hóflegt álag. Það er ljóst að þeirri baráttu er hvergi nærri lokið.