Hvað varð til þess að þú ákvaðst að verða hjúkrunarfræðingur?
Ég fór í hjúkrun árið 2003 eftir að hafa tekið hlé eftir framhaldsskóla og var að reyna gera upp við mig hvort ég ætti að fara í félagsráðgjöf eða hjúkrunarfræði. Amma mín var hjúkrunarkona og lá það alltaf í loftinu að ég ætti að verða það líka. Ég var ekki tilbúin að láta aðra ákveða það fyrir mig en á endanum ákvað ég að láta á það reyna og skráði mig í námið 2003. Þá voru 240 nemar skráðir í klásus.
Það var áskorun út af fyrir sig að komast inn og þá kom keppnisskapið sér vel, því inn ætlaði ég.
Ég er alin upp á Eskifirði til sex eða sjö ára aldurs. Amma og afi bjuggu á Seyðisfirði og starfaði amma sem hjúkrunarkona þar. Árið 1987 var ég hjá ömmu í nokkra mánuði á meðan afi var á spítala og mamma var hjá honum fyrir sunnan. Ég var svo heppin að fá að fylgja henni í vitjanir. Ég var víst mjög virkur þátttakandi í sáraskiptum og ýmsu öðru. Ég hef líklega verið fjögurra eða fimm ára gömul þegar ég fór fyrst með henni. Ég man sérstaklega eftir því að hún var með gamaldags sleða með skíðum aftan í, ég sat á eins konar stól á meðan hún ýtti mér áfram, mjög eftirminnilegt. Hún svo sótbölvaði þeim sem höfðu brætt snjóinn svo ekki var hægt að komast áfram á sleðanum.
Amma var frá Færeyjum, fædd 1920, ein af ellefu systkinum, og sú eina sem flutti til Íslands þegar hún var ung. Hún fór að vinna á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði þar sem hún kynntist afa mínum sem var með berkla. Hún ólst upp í litlu þorpi í Færeyjum sem heitir Hvannasund við frekar kröpp kjör og bjó í húsi með moldargólfi þegar hún var lítil, ég allavega man þegar hún sagði mér það.
Það er í raun magnað að amma mín sem ólst upp við þessar aðstæður í litlu sjávarþorpi í Færeyjum, hafi endað sem hjúkrunarkona á Íslandi. Það sýnir kannski líka hvað hjúkrunarstarfið hefur alltaf opnað margar dyr.
Hvernig hófst svo ferillinn?
Ég byrjaði að vinna á taugadeild eftir fyrsta eða annað árið í hjúkrunarnáminu og vann þar tvö sumur samhliða skólanum.
Síðar vann ég á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ á tíu rúma deild fyrir konur með alzheimer-sjúkdóm. Það var mjög lærdómsríkur tími og þar upplifði ég í fyrsta sinn að þurfa að búa um látinn einstakling. Ég var ein á næturvakt þegar kona lést. Þar sem hún deildi herbergi með annarri konu þá gat ég ekki látið hana vera þar inni eftir að hún var dáin, ef hin konan skyldi vakna. Ég sem sagt flutti hana fram á gang þar sem hún var alla nóttina. Það var frekar svona „draugalegt“ að hafa hana látna á ganginum því ég þurfti jú að fara reglulega og snúa hinum konunum og ganga því fram hjá rúminu hennar mörgum sinnum þá nótt. Eins var ég mjög stressuð um að hinar konurnar myndu vakna og fara fram, eins og oft gerðist og sjá hana þar í rúminu látna. Pínu kómískt eftir á og reynsla í bankann fyrir mig en ég var um 24 ára þarna.
Sumarið 2006 byrjaði ég að vinna á BUGL, á unglingadeildinni þar. Ég vann þar um sumarið og með skólanum fram að útskrift og fannst það einnig mjög lærdómsríkur tími. Þar kynntist ég mörgu fólki sem er enn vinir mínir í dag. Ég kynntist einnig frábæru fagfólki sem verið hefur mér fyrirmyndir síðan.
Eftir útskrift hóf ég störf á bráðamóttöku Landspítala í júlí 2007. Nokkrar vinkonur mínar úr náminu voru þegar farnar að vinna þar og höfðu sagt mér frá starfinu. Ég hafði einnig verið þar í verknámi í eina viku og eftir þá reynslu var ég eiginlega ákveðin í að mig langaði að prófa að starfa þar.
Það sem hefur alltaf heillað mig mest er að vinna með fólki sem er að takast á við erfið tímabil í lífinu. Á bráðamóttökunni eru einstaklega margir reyndir hjúkrunarfræðingar sem unun er að fylgjast með og læra af.
Ég starfaði á bráðamóttökunni í um tíu ár í fullu starfi. Á þeim tíma var ég lengi ein með son minn og fann að það varð sífellt erfiðara að samræma vaktavinnu og fjölskyldulíf. Það fylgir því mikið skipulag að vera einstætt foreldri og vinna kvöldvaktir, helgar- og stundum næturvaktir. Ég var oft þreytt og í raun ekki að verða sá karakter sem ég vildi vera. Það er ekki gaman að vera mamma sem er alltaf þreytt og pirruð, alls ekki. Því ákvað ég þegar strákurinn minn var fimm ára að breyta til. Ég var að flytja í Mosfellsbæ og ákvað að sækja um á Reykjalundi.
Á Reykjalundi starfaði ég í um fimm ár. Eitt af því mikilvægasta sem ég tók með mér þaðan var mikilvægi teymisvinnu. Ég lærði hvað það getur skipt miklu máli fyrir skjólstæðinga að hafa ákveðið teymi í kringum sig og hvernig góð samvinna ólíkra fagstétta getur styrkt þjónustuna og upplifun fólks af henni.

Hvernig fer maður frá starfi hjá ríki og yfir í eitthvað alveg nýtt?
Á meðan ég starfaði á Reykjalundi hélt ég áfram að taka vaktir á bráðamóttökunni og tengingin við Landspítalann rofnaði aldrei. Þegar mér bauðst síðar staða verkefnastjóra á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis ákvað ég að stíga það skref og sneri aftur á Landspítalann í fullt starf.
Í störfum mínum, bæði á bráðamóttökunni og Reykjalundi, mætti ég fólki sem hafði gengið í gegnum áföll og ýmiss konar erfiða lífsreynslu. Ég fann sífellt sterkari þörf fyrir að efla mig í mæta þessu fólki betur og öðlast meiri þekkingu á því hvernig best væri að mæta fólki í krísu. Það varð til þess að ég fór í sálgæslunám og kláraði það árið 2022.
Mig langaði að geta verið betur í stakk búin að styðja fólk á erfiðum tímum.
Mörg atvik á bráðamóttökunni hafa mótað mig en eitt atvik hafði sérstaklega mikil áhrif á mig. Ég lenti í mjög erfiðum aðstæðum þar sem mér leið eins og ég gæti hvorki sagt né gert neitt rétt. Þrátt fyrir að hafa starfað í nokkur ár og tekist á við margvíslegar aðstæður vissi ég einfaldlega ekki hvernig ég ætti að vera til staðar. Þetta sat lengi í mér og situr jafnvel enn.
Ég hef lært mikið af samstarfsfólki mínu eins og hefur komið fram. Ég man sérstaklega eftir prestinum sem kom að þessu máli. Ég hlustaði á hana tala við fjölskylduna og hugsaði með mér: Mig langar að geta gert þetta.
Hún hafði tungumál sem mér hefði aldrei dottið í hug að nota og gat verið til staðar á svo fallegan og faglegan hátt. Það hafði mikil áhrif á mig að fylgjast með henni og sú reynsla hefur fylgt mér síðan.
Árin á Neyðarmóttökunni voru öðruvísi en allt annað sem ég hafði starfað við. Stór hluti vinnunnar fólst í umsjón með þjónustunni, miklu samstarfi við lögreglu og aðra aðila utan heilbrigðiskerfisins. Þar mætir maður einstaklingum á þeirra verstu stundum. Málin voru mörg hver þung og maður sá vel hversu flókið og erfitt er fyrir þolendur kynferðisofbeldis að fara í gegnum dómskerfið.
Það var þó líka gefandi að fá að styðja fólk á þessum erfiða tíma og reyna að hjálpa því að komast eins heillega og mögulegt er í gegnum slíka lífsreynslu. Mér fannst líka mikilvægt að fá að taka þátt í stefnumótunarvinnu og þróun þjónustunnar í samstarfi við aðrar fagstéttir og stofnanir, með það að markmiði að bæta ferla og þjónustu fyrir þolendur.
Það var einmitt í gegnum tengsl og samstarf sem síðan opnaðist tækifæri til að taka þátt í að byggja upp nýtt fyrirtæki.
Auðvitað nýtist reynslan mín vel, bæði sem hjúkrunarfræðingur sem hefur tekist á við ýmsar áskoranir á bráðamóttökunni og ekki síst að hafa farið í sálgæsluna.

Hvernig er að taka þátt í uppbyggingu nýs fyrirtækis?
Það var stór ákvörðun og alls ekki eitthvað sem ég hafði planað. Ég var lengi ekki viss um hvort þetta væri rétt ákvörðun. Þetta var algjör kúvending frá því sem ég hafði verið að gera.
Ég vissi í raun mjög lítið um glasafrjóvganir áður en ég byrjaði, fyrir utan eigin reynslu sem skjólstæðingur. En til þess að eignast dóttur okkar þurftum við maðurinn minn að fara í frjósemismeðferð.
Ég gerði mér enga grein fyrir umfangi starfsins eða hvað það fæli raunverulega í sér.
Það sem heillaði mig var fyrst og fremst að fá að taka þátt í að byggja eitthvað upp frá grunni. Við vorum ekki einu sinni komin með fullbúið húsnæði. Mér fannst það mjög spennandi þótt ég vissi ekki nákvæmlega út í hvað ég væri að fara.
Ég hélt að þetta yrði rólegra starf og að það yrði kannski þægilegt að vera í dagvinnu og föstum takti. En ég komst fljótt að því að þetta er ekki rólegra starf, síður en svo. Dagarnir liðu ótrúlega hratt og starfið er miklu fjölbreyttara en ég hafði gert mér grein fyrir.
Eitt af því sem ég tók með mér frá Reykjalundi var mikilvægi teymisvinnu í kringum skjólstæðinga og fannst mér borðleggjandi að taka það upp fyrir skjólstæðinga Sunnu.
Við reynum því að hafa ákveðinn lækni, hjúkrunarfræðing og fósturfræðing í kringum hvert par eða hvern einstakling sem er í meðferð hjá okkur.
Mér fannst það mikilvægt vegna þess að ég hafði heyrt frá fólki sem hafði farið í gegnum frjósemismeðferðir að því fyndist það stundum vera eins og númer á blaði eða hlutur á færibandi. Mig langaði að reyna að skapa aðra upplifun.
Auðvitað veit ég ekki alltaf hvernig reynsla fólks hefur verið annars staðar en upplifun mín núna er að fólki finnist gott að hafa einn tengilið og greiðan aðgang að starfsfóli og leggjum við okkur fram um að uppfylla það. Einhvern sem þekkir málið þeirra og þau geta haft samband við og fengið svar frá. Mér finnst mikilvægt að fólk upplifi að það skipti máli sem einstaklingar, að fólki finnist það hafa stuðning og að það sé hlustað á það.

Er einhver hluti starfsins meira krefjandi en aðrir þættir þess?
Það sem kom mér líklega mest á óvart þegar ég byrjaði að starfa við frjósemismeðferðir var hversu margir glíma við ófrjósemi, hversu fjölbreytt ástæðan getur verið og hversu langt og erfitt ferlið getur verið fyrir marga og í raun mjög marga.
Ég held að ég hafi ekki gert mér grein fyrir því í upphafi hversu stór hópur þetta er eða hversu langa og erfiða vegferð margir þurfa að fara.
Það sem mér finnst mest krefjandi er þegar fólk þarf að fara aftur og aftur í gegnum meðferðir án þess að fá þær niðurstöður sem það vonast eftir. Maður sér og finnur hve átakanlegt það er á fá endurtekið neikvæða niðurstöðu. Fólk byggir upp von, er með væntingar sem eru oft og tíðum skotnar niður endurtekið.
Ég get alla vega sagt að ég vildi ekki vera hér sem nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur án reynslu í samskiptum við fólk í krísu.
Auðvitað nýtist reynslan mín vel, bæði sem hjúkrunarfræðingur sem hefur tekist á við ýmsar áskoranir á bráðamóttökunni og ekki síst að hafa farið í sálgæsluna.
Það sem maður getur gert hér er að vera til staðar, hlusta, vonandi leiðbeina og gera gagn.
Það sem mér finnst skemmtilegast við starfið í dag er þegar maður fær góðar fréttir. Þegar maður hefur fylgt fólki í gegnum langt og oft erfitt ferli og fær símtal um að meðferð hafi gengið vel eða að það sé komið með jákvætt þungunarpróf, þá eru það auðvitað mjög ánægjuleg augnablik og þær stundir sem standa mest upp úr. Stundum upplifi ég að ég sé að taka þungunarpróf nokkrum sinnum í viku, maður verður mjög tengdur fólki í meðferðunum og fær þetta svolítið á heilann, ég viðurkenni það.
Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?
Ég veit það svo sem ekki alveg, ég er mjög ánægð þar sem ég er núna. Ef eitthvað hefur komið mér á óvart í gegnum árin þá er það hvað hjúkrunarstarfið getur leitt mann á ólíka staði. Ég get ekki sagt að ég verði hér að eilífu, kannski sný ég aftur „heim“ á bráðamóttökuna, hver veit. Ég er alla vega hér núna og er ekki á leið burtu í bráð.
Þegar ég byrjaði í hjúkrunarnáminu hafði ég enga hugmynd um hvert það myndi leiða mig. Ég hef unnið með öldruðum, börnum og unglingum, á bráðamóttöku, í endurhæfingu, á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis og nú við frjósemismeðferðir.
Þetta eru ólík störf en eiga það sameiginlegt að snúast um fólk og samskipti. Það hefur kannski komið mér mest á óvart hvað hjúkrunin er fjölbreytt og hversu mörg tækifæri hún getur gefið manni.





