Fara á efnissvæði
ICN 2027 - abstract submissions open
Frétt

ICN Congress 2027 - opið fyrir innsend erindi

Hægt er að senda inn lýsingu á erindum eða ágrip (e. abstract) fyrir Heimsþing Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga í Taipei 2027. Tekið verður við innsendum erindum fram til 30. september 2026.

31. heimsþing Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga verður haldið 8.-11. júlí 2027 í Taipei. Þema heimsþingsins að þessu sinni verður Empowered Nurses: New Horizons Transforming Health and Care og er nú hægt að senda inn lýsingar á erindum eða ágrip (e. abstract) fyrir ráðstefnuna út frá níu undirþemum.

  • Leading health system transformation
  • Strengthening patient safety and quality in people-centred care
  • Practice innovation, new and emerging care models
  • Nursing education and lifelong capability for a changing world
  • Workforce wellbeing and human resources for health
  • Delivering safe and equitable care in humanitarian and emergency contexts
  • Digital transformation with data, robotics, and AI
  • Global health priorities
  • Ethics and regulation: navigating professional standards in a modern healthcare landscape

ICN hvetur sérstaklega hjúkrunarfræðinga í námi til að senda inn erindi.

Lykildagsetningar til að hafa í huga fyrir áhugasama:

  • 1. ágúst 2026 - Opnað fyrir innsendingar á ágripum
  • 30. september 2026 - Lokað fyrir innsendingar
  • 28. febrúar 2027 - Early bird skráningu á þingið lýkur
  • 15. mars 2027 - Framlengdum early bird fresti lýkur fyrir þá sem verða með kynningu
  • 8. júlí 2027 - Heimsþing ICN 2027 hefst

ICN stóð nýlega fyrir vefnámskeiði um hvernig ætti að útbúa ágrip (e. abstract) fyrir heimsþingið. sem hægt er að skoða hér.