Fræðslugáttin inniheldur meira en 100 sérvaldar upptökur frá heimsþingi ICN í Helsinki 2025, þar sem 7.000 hjúkrunarfræðingar allstaðar að úr heiminum komu saman. Efninu er skipt upp í 8 rásir sem ná utan um margar helstu áherslur og áskoranir í hjúkrun um þessar mundir.

ICN Learning Hub
Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga (ICN), hefur nú opnað fyrir fræðslugátt undir heitinu ICN Learning Hub. Hjúkrunarfræðingar um allan heim geta nú nálgast námsefni og fræðslu á heimsvísu í gegnum gáttina.




