Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur Fíh er í gildi – en hvað gerist ef samningar losna á almennum markaði?

Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við ríkið er í fullu gildi. Sú staða sem nú er komin upp á almennum vinnumarkaði hefur því ekki sjálfkrafa áhrif á kjarasamning félagsins. Í samningi Fíh er hins vegar sérstakt ákvæði sem tengir stöðu hans við þróun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við ríkið er í fullu gildi. Sú staða sem nú er komin upp á almennum vinnumarkaði hefur því ekki sjálfkrafa áhrif á kjarasamning félagsins. Í samningi Fíh er hins vegar sérstakt ákvæði sem tengir stöðu hans við þróun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Í 13. gr. kjarasamnings Fíh við ríkið kemur fram að ákveði launa- og forsendunefnd ASÍ og SA launa- eða kjarabreytingar vegna forsendubrests skuli Fíh og ríkið taka upp viðræður um hvernig sambærilegar kjarabreytingar komi til framkvæmda gagnvart hjúkrunarfræðingum.

Verði kjarasamningum á almennum vinnumarkaði hins vegar sagt upp á grundvelli forsenduákvæða þeirra verður staðan önnur. Þá hefur Fíh heimild til að segja upp sínum kjarasamningi við ríkið með þriggja mánaða fyrirvara miðað við mánaðamót.

Það er mikilvægt að undirstrika að samningur Fíh losnar ekki sjálfkrafa þótt samningar á almennum vinnumarkaði geri það. Slík staða myndi hins vegar opna á ákvörðun Fíh um hvort nýta eigi uppsagnarheimildina.

Aðgerðir þurfa að ná til þeirra sem finna mest fyrir stöðunni

Nú eru ýmsar aðgerðir til umræðu til að skapa skilyrði fyrir því að langtímakjarasamningar haldi. Þar á meðal hefur félags- og húsnæðismálaráðherra lagt fram frumvarp um svokallaða leigubremsu sem ætlað er að auka húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleika leigjenda.

Ný rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu sex hópa háskólamenntaðra, þar á meðal félagsfólks Fíh, gefur mikilvægar vísbendingar um þetta. Um 74% svarenda bjuggu í eigin húsnæði með húsnæðisláni en aðeins um 5% heildarhópsins voru á almennum leigumarkaði. Rannsóknin sýnir jafnframt að börn á heimili og námslán eru meðal þeirra þátta sem tengjast erfiðleikum við að standa undir húsnæðiskostnaði. Meðal þeirra sem bæði voru með húsnæðislán og greiddu af námslánum áttu 28% erfitt með að standa undir húsnæðiskostnaði.

Skýrsla um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

Fíh telur mikilvægt að brugðist sé við stöðu leigjenda. En aðgerðir vegna forsendubrests verða jafnframt að taka mið af því hvar kostnaðarþrýstingurinn liggur hjá ólíkum hópum launafólks.

Þetta undirstrikar að aðgerðir stjórnvalda þurfa að vera fjölþættar. Fyrir marga hjúkrunarfræðinga getur skipt meira máli að létta greiðslubyrði húsnæðislána, horfa til stöðu námslána og koma betur til móts við barnafjölskyldur en aðgerðir sem einskorðast við leigumarkaðinn.

Hið opinbera þarf einnig að leggja sitt af mörkum

Við gerð langtímakjarasamninga árið 2024 var lögð rík áhersla á sameiginlega ábyrgð launafólks, atvinnurekenda og hins opinbera á að ná niður verðbólgu og vöxtum. Launafólk samþykkti hóflegar launahækkanir til langs tíma í þeirri von að stöðugleiki myndi skila sér í lægri verðbólgu, lægri vöxtum og auknum kaupmætti.

Á móti gáfu ríki og sveitarfélög skýr fyrirheit um sitt framlag. Í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningunum kom meðal annars fram að gjaldskrár ríkisins skyldu almennt ekki hækka umfram 2,5%. Sveitarfélög lýstu jafnframt yfir vilja til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og aðgerðum sem eru íþyngjandi fyrir barnafjölskyldur.

Við núverandi aðstæður hlýtur því einnig að reyna á ábyrgð ríkis og sveitarfélaga, sem eru jafnframt langstærstu vinnuveitendur hjúkrunarfræðinga.

Ríkið hefur sjálft tekið ákvarðanir um gjaldskrár sem ganga mun lengra en þau 2,5% sem talað var um í tengslum við gerð langtímasamninganna. Almennt komugjald í heilsugæslu var hækkað úr 500 krónum í 1.000 krónur, sem er 100% hækkun, og komugjald utan dagvinnutíma úr 3.100 í 3.500 krónur sem er 13% hækkun. Þá var tekið upp nýtt 1.500 króna komugjald vegna sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar og talþjálfunar sem fellur utan greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustunnar.

Á sama tíma hafa stærstu sveitarfélög landsins ráðist í eða lagt til breytingar á leikskólakerfinu sem fela í sér aukinn kostnað eða minni sveigjanleika fyrir barnafjölskyldur. Þar má meðal annars nefna tillögur um styttri dvalartíma barna og hækkun gjalda fyrir leikskólavistun.

Fyrir hjúkrunarfræðinga er þetta ekki jaðarmál. Stéttin er að langstærstum hluta skipuð konum og stór hluti hjúkrunarfræðinga starfar á vöktum. Breytingar sem stytta dvalartíma barna eða auka kostnað vegna leikskóla geta því haft bein áhrif á möguleika hjúkrunarfræðinga til að samræma fjölskyldulíf og vaktavinnu. Þær geta jafnframt unnið gegn því markmiði heilbrigðiskerfisins að auka atvinnuþátttöku hjúkrunarfræðinga á sama tíma og skortur er á þeim.

Þegar kallað er eftir því að fyrirtæki og launafólk sýni aðhald verður hið opinbera því einnig að líta í eigin barm. Ríki og sveitarfélög eru ekki aðeins þátttakendur í sameiginlegri baráttu gegn verðbólgu heldur einnig stærstu vinnuveitendur hjúkrunarfræðinga. Þau bera því sérstaka ábyrgð á að eigin ákvarðanir vinni ekki gegn þeim markmiðum sem langtímakjarasamningarnir byggðu á.

Ef samningar losna þarf að horfa til forgangsmála hjúkrunarfræðinga

Fari svo að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði lausir og Fíh standi frammi fyrir ákvörðun um framhald eigin kjarasamnings mun félagið þurfa að meta stöðuna út frá hagsmunum hjúkrunarfræðinga.

Mikilvægt er að vinna áfram að bættum kjörum og afkomu hjúkrunarfræðinga. Þar þarf að horfa til launa og kaupmáttar en einnig þeirra þátta sem hafa veruleg áhrif á ráðstöfunartekjur félagsfólks, svo sem húsnæðiskostnaðar, námslána og stöðu barnafjölskyldna.

Stærstu hagsmunamál hjúkrunarfræðinga snúa jafnframt að framtíð stéttarinnar og heilbrigðisþjónustunnar. Þar er eitt af meginmálum Fíh að vinna að lögbundnum mönnunarviðmiðum, þannig að mönnun heilbrigðisþjónustunnar byggi á faglegum forsendum, gæðum þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Því tengist einnig krafa Fíh um að komið verði á fót stöðu yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar, sem hafi meðal annars mikilvægu hlutverki að gegna við innleiðingu og eftirfylgni mönnunarviðmiða í heilbrigðisþjónustunni.

Önnur mikilvæg hagsmunamál eru aukin viðurkenning á störfum hjúkrunarfræðinga, víkkað starfsvið sérfræðinga í hjúkrun, kröfur um íslenskukunnáttu í heilbrigðisþjónustu og að hjúkrunarfræðinám verði styrkt til jafns við nám annarra háskólamenntaðra heilbrigðisstétta.

Kjarasamningar til langs tíma byggja á trausti og sameiginlegri ábyrgð. Launafólk lagði mikið undir árið 2024 með hóflegum langtímasamningum. Á móti voru gefin skýr fyrirheit um að atvinnulíf, ríki og sveitarfélög myndu leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum og verja kaupmátt heimilanna.

Ef ætlast er til þess að launafólk standi við sinn hluta þeirrar vegferðar þurfa ríki, sveitarfélög og atvinnurekendur að gera slíkt hið sama. Allir þurfa að leggjast á eitt og orð skulu standa.