Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við SFV samþykktur

Nýr kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu gildir frá 1. apríl 2023 og til 31. mars 2024.

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) fór fram dagana 8. júní kl. 17:00 til 14. júní kl. 12:00. Á kjörskrá voru 369, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi Fíh við SFV. Alls tóku 51,9% þátt í atkvæðagreiðslunni.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu 75%
Nei sögðu 24%
1%, tók ekki afstöðu.

Kjarasamningur undirritaður 6. júní 2023 hefur því verið samþykktur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2023 og gildir til 31. mars 2024.