Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur

Samningurinn tryggir launahækkanir og kjarabætur fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við Samband íslenskra sveitarfélaga fór fram dagana 19. maí kl. 15:00 til 24. maí kl. 12:00. Á kjörskrá voru þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Alls tóku 53,6% þátt í atkvæðagreiðslunni.

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já sögðu 77,3%
Nei sögðu 22,7%

Kjarasamningur undirritaður þann 17. maí 2023 hefur því verið samþykktur af atkvæðabærum félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2023 og gildir til 31. mars 2024.