Fara á efnissvæði
Frétt

Könnun um sýklalyfjaónæmi

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur þátt í að miðla könnun í samstarfi við Embætti landlæknis um þekkingu og viðhorf heilbrigðisstarfsfólks og nemenda í heilbrigðisgreinum til sýklalyfja, sýklalyfjaónæmis og sýkingavarna.

Könnunin er framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir sóttvarnalækni og er markmið hennar að varpa ljósi á stöðuna hér á landi og skapa grundvöll fyrir umbætur sem gagnast bæði heilbrigðisstarfsfólki og sjúklingum.

Við hvetjum hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í könnuninni. Þátttaka ykkar er mikilvæg til að fá sem skýrasta mynd af þekkingu og viðhorfum fagfólks á þessu mikilvæga sviði.

Þau sem ljúka könnuninni geta jafnframt skráð sig í happdrætti þar sem fjórir heppnir þátttakendur vinna hver um sig 30.000 kr. gjafabréf í Kringluna.

Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar til að skapa grundvöll fyrir markvissa fræðslu og efla aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi. Könnunin er meðal verkefna aðgerðaáætlunar stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi og tengist jafnframt evrópska samstarfsverkefninu EU-JAMRAI sem Ísland tekur þátt í.

Ef óskað er frekari upplýsinga er hægt að hafa samband við: [email protected].