Fara á efnissvæði
Heilbrigðisráðuneyti
Frétt

Lýðheilsuhvatning til stjórnvalda

Breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka hvetja alþingismenn og ráðherra til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi. Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra veitti hvatningunni viðtöku í dag, 11. júní 2026.

Í tilefni svara ríkisstjórnarinnar til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þann 21. apríl sl. og þess að nú í júní eru liðin 6 ár frá kæru ÁTVR á hendur netsölu áfengis hvetur breiðfylking heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka stjórnvöld til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.

Félögin fagna því að í svörum ríkisstjórnarinnar til ESA er því komið skýrt á framfæri að það viðskiptamódel netsölu áfengis, sem tekist hefur verið á um á Íslandi síðustu árin, er ólöglegt að mati ríkisstjórnarinnar. Héraðsdómur Reykjaness komst að sömu niðurstöðu þann 8. apríl sl.

Fyrir 6 árum, þann 16. júní 2020, kærði ÁTVR slíka netsölu og er það áhyggjuefni hve seint hefur gengið að fá niðurstöðu í mál er varða mikilvæga lýðheilsu-og samfélagshagsmuni.

Félögin lýsa ánægju með að í drögum að stefnu í áfengis-og vímuvarnarmálum til 2035 taki heilbrigðisyfirvöld mið af áherslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um að draga úr skaðlegri notkun áfengis með gagnreyndum forvarnaraðgerðum, en skýrsla stofnunarinnar frá 2025 sýnir að áframhaldandi einkasala ríkisins á áfengi er mikilvægt lýðheilsumál.

Félögin ítreka fyrri áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis frá 26. ágúst 2024.

Þá er sparnaðarráð þeirra, Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka ofl., sem birt var í samráðsgátt þann 21. janúar 2025, ítrekað.

Að hvatningunni standa

· Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

· Félag lýðheilsufræðinga

· Ljósmæðrafélag Íslands

· Læknafélag Íslands

· Sálfræðingafélag Íslands

· Sjúkraliðafélag Íslands

· Félagsráðgjafafélag Íslands

· Lyfjafræðingafélag Íslands

· Iðjuþjálfafélag Íslands

· Þroskaþjálfafélag Íslands

· Félag sjúkraþjálfara

· Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa

· SÁÁ

· Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu

· Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum

· IOGT á Íslandi

· SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum