Fara á efnissvæði
Frétt

Málþing um sýklalyfjaónæmi

Í tilefni Vitundarvakningar um sýklalyfjaónæmi mun sóttvarnalæknir halda málþing miðvikudaginn 18. nóvember 2026 kl. 13-15 í húsnæði sóttvarnalæknis / embættis landlæknis, Katrínartúni 2 (6. hæð), en einnig verður boðið upp á þátttöku með fjarfundi (Teams).

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 16.11.2026 með tölvupósti á netfangið [email protected] og takið fram hvort þið hyggist mæta á staðinn eða hlusta á fundinn í streymi. Hlekkir til að tengjast fundinum verða sendir til þeirra sem hafa skráð sig þegar nær dregur.

  • Þema málþings: Frá vitund til forvarna: Sýklalyfjanotkun, sýkingavarnir og bólusetningar
  • Fundarstjóri: Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir

Dagurinn 18. nóvember er sérstaklega helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC). Sama dag hefst vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Tilgangur þessarar vitundarvakningar er að minna almenning, stjórnvöld, heilbrigðisstarfsmenn og aðra aðila á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum.