Fara á efnissvæði
Frétt

Mikill áhugi á hjúkrunarnámi á Íslandi

Um 30% fjölgun umsókna í hjúkrunarfræðinám milli ára í Háskóla Íslands og um 11% fjölgun í Háskólanum á Akureyri ber vott um stóraukinn áhuga á heilbrigðisvísindum almennt og sérstaklega hjúkrunarfræði sem námsleið á háskólastigi.

Háskóla Íslands bárust rúmlega 8.700 umsóknir um grunn- og framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild bárust samtals um 230 umsóknir en þar á meðal eru þau sem hyggjast hefja nám á námsleið í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf. Fjölgun umsókna um nám við deildina nemur nærri 30% milli ára.

Þá bárust 2.343 umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri fyrir haustmisseri 2026, sem er 8,5% fjölgun frá fyrra ári. Umsóknir hafa sjaldan verið fleiri og vekur sérstaklega athygli mikil fjölgun umsókna á meistarastigi, þar sem þær jukust um rúm 20% á milli ára.

Greina má mikinn áhuga á heilbrigðisvísindum í HA, en alls bárust hjúkrunarfræðideild 464 umsóknir í ár samanborið við 419 árið áður sem jafngildir 10,7% fjölgun og er BS-nám í hjúkrunarfræði er áfram meðal eftirsóttustu námsleiða háskólans.

„Það segir sína sögu að 329 einstaklingar hafi sótt um í BS-nám í hjúkrunarfræði við HA í ár þrátt fyrir að aðeins 75 stúdentar geti haldið áfram að loknu fyrsta misseri. Námið nýtur afar góðs orðspors og eftirspurnin er mikil. Þessar umsóknartölur undirstrika jafnframt hversu mikilvægt er að hér verði byggt upp fullbúið hermisetur sem myndi gera okkur kleift að bjóða fleiri stúdentum námspláss að loknum klásus. Það leikur enginn vafi á því hve mikilvægt það er fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi,“ segir Áslaug.