Að baki skýrslunum liggur umfangsmikil fagleg vinna. Í maí 2023 skipaði heilbrigðisráðherra vinnuhóp um mönnunarviðmið í hjúkrun sem skilaði skýrslu árið 2024. Í framhaldinu var skipaður annar vinnuhópur sem vann að innleiðingu mönnunarviðmiða á bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Í skýrslu hans frá 2026 eru mönnunarviðmiðin meðal annars kostnaðargreind og lagðar fram tillögur að mælikvörðum og viðbrögðum við ónógri mönnun.
Fíh leggur áherslu á að mönnunarviðmið byggð á hjúkrunarþyngd verði grundvöllur mönnunar á heilbrigðisstofnunum. Félagið vill skýran ramma og lögbundin mönnunarviðmið. Skammsýni og einskiptisaðgerðir duga ekki til.
Um 40% undirmönnun miðað við stöðluð mönnunarviðmið
Í skýrslunni frá 2026 kemur fram að mönnunarviðmið hafi verið reiknuð og kostnaðarmetin með samræmdum hætti fyrir 16 bráðalegudeildir lyflækninga og skurðlækninga á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Gerður var samanburður á milli staðlaðra mönnunarviðmiða og raunmönnunar.
Niðurstaðan var að á viðkomandi deildum væri um 40% undirmönnun miðað við stöðluðu viðmiðin, bæði í hópi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
Niðurstaða kostnaðarmats vegna innleiðingar mönnunarviðmiðanna var viðbótarkostnaður sem nemur 1,5 milljörðum króna á ársgrunni á verðlagi ársins 2024.
Fíh leggur áherslu á að fjármögnun mönnunar taki mið af faglegum mönnunarviðmiðum, hjúkrunarþyngd og gæðum og öryggi þjónustunnar.
Tillaga um embætti yfirhjúkrunarfræðings ítrekuð
Í skýrslu vinnuhópsins frá 2024 var lagt til að komið yrði á fót embætti yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar, samhliða tillögu um verklag við gerð mönnunarviðmiða.
Í síðari skýrslunni frá 2026 er tillagan tekin upp að nýju og hlutverk yfirhjúkrunarfræðings útfært nánar. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að hann hafi yfirsýn yfir mönnun hjúkrunar á landsvísu, komi að stefnumótun og innleiðingu mönnunarviðmiða og tryggi að mönnunaráætlanir stofnana byggi á samræmdu verklagi og mælingum.
Þörfin fyrir slíka yfirsýn og stefnumótun er ekki ný af nálinni. Ríkisendurskoðun benti þegar árið 2017 á að stjórnvöld hefðu hvorki tekið saman upplýsingar um umfang manneklu í hjúkrun né mótað formlega stefnu um bætta mönnun hjúkrunarfræðinga. Í skýrslu stofnunarinnar frá 2025 um mönnun og flæði sjúklinga á Landspítala voru viðbrögð heilbrigðisyfirvalda við mönnunarvandanum jafnframt sögð einkennast af úrræðaleysi og kerfislegum lausatökum.
Fíh fagnar sérstaklega því að tillagan um embætti yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar sé tekin upp aftur í síðari skýrslunni og hlutverk hans þar útfært nánar. Félagið leggur áherslu á að tillögunni verði hrint í framkvæmd.
Áhyggjur af fjármögnun
Fíh hefur verulegar áhyggjur af því hvort fjárhagslegar forsendur séu fyrir því að tillögunum verði hrint í framkvæmd. Í umsögn félagsins um fjármálaáætlun 2027–2031 var bent á misræmi milli yfirlýstra markmiða stjórnvalda um eflingu heilbrigðisþjónustunnar og þeirrar fjárhagslegu umgjarðar sem henni er ætluð.
Fíh hefur jafnframt bent á að ekki sé nóg að fjárfesta í byggingum og öðrum innviðum heilbrigðiskerfisins ef ekki er tryggt nægilegt rekstrarfé til að manna þjónustuna með hæfu starfsfólki. Gæði heilbrigðisþjónustunnar ráðast ekki aðeins af húsnæði og tækjabúnaði heldur einnig af því að nægilega margir hjúkrunarfræðingar séu til staðar til að sinna þörfum sjúklinga.
Niðurstöður skýrslunnar frá 2026 gera þessa áskorun áþreifanlega. Þegar greining á 16 bráðalegudeildum sýnir um 40% undirmönnun miðað við stöðluð mönnunarviðmið og áætlaður viðbótarkostnaður við innleiðingu þeirra nemur 1,5 milljörðum króna á ári, á verðlagi ársins 2024, er ljóst að innleiðingin kallar á ákvarðanir um fjármögnun og forgangsröðun.
Fíh lýsir áhyggjum af því að yfirlýsingar stjórnvalda um eflingu heilbrigðisþjónustunnar og áherslur í ríkisfjármálum fari ekki nægilega saman. Félagið telur mikilvægt að stjórnvöld sýni með skýrum fjárhagslegum skuldbindingum hvernig þau hyggjast bregðast við þeirri undirmönnun sem skýrslan leiðir í ljós. Það dugar ekki að skilgreina fagleg mönnunarviðmið ef fjárveitingar gera heilbrigðisstofnunum ekki kleift að uppfylla þau.
Fíh ítrekar þá afstöðu sína, sem fram kemur í umsögn félagsins um fjármálaáætlun 2027–2031, að fjárveitingar til reksturs heilbrigðiskerfisins nægi ekki til að viðhalda óbreyttu ástandi. Mönnun sé ein helsta áskorun heilbrigðiskerfisins og mikilvægt að tryggja starfsaðstöðu, kjör og starfsumhverfi sem hæft starfsfólk sækir í. Niðurstöður skýrslnanna um mönnunarviðmið sýna jafnframt þörfina fyrir að mönnun byggi á mældu hjúkrunarálagi, gagnreyndri þekkingu og gæðum þjónustunnar.
Fíh leggur áherslu á að tillögum skýrslnanna verði fylgt eftir og að fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar taki mið af þeim mönnunarviðmiðum sem þar eru lögð til grundvallar.
Innleiðing mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum LSH og SAk - Febrúar 2026
PDF, 3.7 mb
Mönnunarviðmið í hjúkrun - Júní 2024
PDF, 8.5 mb
Skýrsla Ríkisendurskoðunar frá 2025 um mönnun og flæði sjúklinga á Landspítala
PDF, 6.8 mb
Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fjármálaáætlun 2027-2031
PDF, 1.5 mb





