Í kjölfar undirritunar kjarasamninga hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagt mikla áherslu á að ljúka við endurnýjun stofnanasamninga við alla viðsemjendur, stendur sú vinna yfir. Nú þegar er búið að endurnýja stofnanasamninga við Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Nú er einnig búið að undirrita nýja stofnanasamninga við þrjú stærstu fyrirtækin innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Eir, Skjól og Hamra, Grundarheimilin og Hrafnistuheimilin.
Með nýjum stofnanasamningum er innleitt starfsþróunarkerfi fyrir hjúkrunarfræðinga sem er mikið hagsbótamál fyrir alla hluteigandi þar sem sí- og endurmenntun er stór og mikilvægur þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga.