Fara á efnissvæði
Frétt

Nýjar úthlutunarreglur Orlofssjóðs og forgangsopnun bókana fyrir sumarið

Stjórn Orlofssjóðs hefur samþykkt nýjar úthlutunarreglur sjóðsins, helstu breytingar eru að óheimilt er að leiga eignir í eigin sveitarfélagi fyrr en tveimur vikum fyrir leigudag og íbúðir verða leigðar út viku í senn yfir sumarið. Forgangsopnun fyrir sumarið hefst mánudaginn 16. mars kl. 10:00.

Stjórn Orlofssjóðs hefur samþykkt nýjar úthlutunarreglur og starfsreglur fyrir sjóðinn. Breytingar eru gerðar frá fyrri úthlutunarreglum, nú er óheimilt fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar að leigja eignir í sínu heimasveitafélagi eða nærumhverfi fyrr en tvær vikur eru til leigudags.

Þá munu íbúðir í Reykjavík og á Akureyri leigjast út í viku í senn yfir sumartímann og verða þær hluti af sumarúthlutun. Yfir sumartímann verður ekki hægt að leigja íbúðirnar í Reykjavík og Akureyri yfir helgi eða stakar nætur.

Forgangsopnun bókana fyrir sumarið

Forgangsopnun orlofsvefs fyrir sumarið 2026 fer fram frá mánudeginum 16. mars til miðvikudagsins 18. mars. Opnun fyrir bókanir á orlofstímabilinu er háð punktainneign sjóðfélaga. Punktar fyrir árið 2025 hafa verið lesnir inn og verður uppfærð staða sýnileg 7. mars á orlofsvefnum undir Um mig.

Forgangsopnunin opnar kl. 10:00 eftirfarandi daga:

Mánudaginn 16. mars

Þeir sem eiga 112 punkta og fleiri, og hafa ekki leigt orlofshús síðastliðin 2 ár, geta bókað og greitt

Þriðjudaginn 17. mars

Þeir sem eiga 82 punkta og fleiri, og hafa ekki leigt orlofshús síðastliðin 2 ár, geta bókað og greitt

Miðvikudaginn 18. mars

Þeir sem eiga 15 punkta og fleiri, og hafa ekki leigt orlofshús síðastliðin 2 ár, geta bókað og greitt

Almenn opnun fyrir bókanir í orlofshús sumarið 2026 verður svo miðvikudaginn 1. apríl 2026 kl. 10:00. Þá geta allir sjóðfélagar, sem eiga til þess punkta, leigt orlofshúsnæði. Sjóðfélagar geta leigt eina viku yfir sumartímann.

Fleiri gjafabréf Icelandair fara í sölu 16. mars þegar forgangsopnun hefst.