Í kjölfar undirritunar kjarasamninga hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagt mikla áherslu á að ljúka við endurnýjun stofnanasamninga við alla viðsemjendur, stendur sú vinna yfir. Nú þegar er búið að endurnýja stofnanasamninga við Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þrjú stærstu fyrirtækin innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Nú er einnig búið að undirrita nýjan stofnanasamning við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Með nýjum stofnanasamningum er innleitt starfsþróunarkerfi fyrir hjúkrunarfræðinga sem er mikið hagsbótamál fyrir alla hluteigandi þar sem sí- og endurmenntun er stór og mikilvægur þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga.