Fara á efnissvæði
Frétt

Nýr stofnanasamningur við SAk undirritaður

Það er mikið fagnaðarefni að nýtt starfsþróunarkerfi fyrir hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri hafi verið innleitt með nýjum stofnanasamningi.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lagt ríka áherslu á að innleiða starfsþróunarkerfi fyrir hjúkrunarfræðinga á öllum heilbrigðisstofnunum landsins í tengslum við endurnýjun stofnanasamninga eftir undirritun miðlægs kjarasamnings.

Það er mikið fagnaðarefni að með stofnanasamningi Fíh og SAk hefur tekist að loka hringnum um land allt, þannig að hjúkrunarfræðingar ríkisstofnana starfa nú eftir sambærilegu starfsþróunarkerfi óháð staðsetningu. Með þessu er stigið stórt skref þar sem flestir hjúkrunarfræðingar njóta sömu tækifæra til faglegs vaxtar og framþróunar.