Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldið 7. október í samstarfi við Deild sérfræðinga í hjúkrun. Yfirskrift þingsins var „Sérfræðingar í hjúkrun: framtíð, hlutverk og stefna“ og markmið þess að hefja markvissa stefnumótun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í málefnum sérfræðinga í hjúkrun, efla faglega umræðu og stuðla að áframhaldandi þróun sérfræðiþekkingar innan stéttarinnar.
Þingið var afar vel sótt. Um 130 þátttakendur mættu á staðinn og um 30 fylgdust með í streymi.
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, setti þingið og vakti meðal annars athygli á mikilvægi þess að fjölga yngri sérfræðingum í hjúkrun og tryggja endurnýjun innan hópsins.
Fjögur áhugaverð erindi voru á dagskrá. Fyrirlesarar voru Kári Árnason, lektor og sérfræðingur í bæklunarsjúkraþjálfun, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Birgitta Inga J. Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur, og Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun og prófessor við Háskólann á Akureyri.
Í lok þingsins var skemmtileg og lífleg vinnustofa þar sem þátttakendur brettu upp ermar og lögðu sitt af mörkum við að móta framtíðarsýn og stefnu félagsins í málefnum sérfræðinga í hjúkrun. Fram komu fjölbreytt sjónarmið og skýr vilji til að efla stöðu sérfræðinga í hjúkrun, styrkja faglegt umhverfi þeirra og skapa skýrari umgjörð um hlutverk þeirra innan heilbrigðisþjónustunnar. Í umræðunum var jafnframt lögð áhersla á að sérfræðingar í hjúkrun þyrftu sjálfir að vera drifkraftar þeirrar þróunar sem fram undan er og að hjúkrunarstjórnendur leituðu leiða til að forgangsraða og skapa svigrúm innan þeirra fjármuna sem þegar eru til staðar til að efla sérfræðihlutverkið á sínum vinnustöðum.
Umræðurnar voru fjörugar, hugmyndirnar margar og greinilegt að þátttakendur höfðu mikið til málanna að leggja. Hjúkrunarþingið markaði þannig mikilvægt upphaf að stefnumótunarvinnu félagsins og munu niðurstöður vinnustofunnar nýtast við áframhaldandi mótun framtíðarsýnar um hlutverk, ábyrgð og þróun sérfræðinga í hjúkrun á Íslandi.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þakkar öllum sem tóku þátt fyrir frábæran dag, góðar umræður og mikilvægt framlag til framtíðar hjúkrunar á Íslandi.
















