Fara á efnissvæði
Gangur - tröppur
Frétt

Opið fyrir umsóknir í minningarsjóði

Minningarsjóðir sem Fíh heldur utan um eru þrír. Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar og Minningarsjóður Kristínar Thoroddsen styrkja hjúkrunarfræðinga í starfi og námi. Rannsókna- og vísindasjóður Maríu Finnsdóttur styrkir hjúkrunarfræðinga til rannsókna- og vísindastarfi.

Opið er fyrir umsóknir í minningarsjóði á vegum Fíh. Umsóknarfrestur er til 1. október 2026.

Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar styrkir hjúkrunarfræðinga til frekara náms og eins til ferðalaga í sambandi við félagsmál, en tilgangur Minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen er að veita viðurkenningu hjúkrunarfræðingum sem skarað hafa fram úr í námi og sýnt sérstaka hæfileika til hjúkrunarstarfa. Minningarsjóður Kristínar veitir einnig styrki til framhaldsnáms í hjúkrun. Rannsókna- og vísindasjóður Maríu Finnsdóttur styrkir hjúkrunarfræðinga til rannsókna- og vísindastarfi.

Styrkjum er úthlutað annað hvert ár, þegar ártal er jöfn tala og er umsóknafrestur til 1. október það ár.

Skoða má nánar um minningarsjóði á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga undir styrkir og sjóðir