Fara á efnissvæði
Frétt

Opið fyrir umsóknir í Vísinda- og rannsóknarsjóð

Opið er fyrir umsóknir í Vísinda- og rannsóknarsjóð. Umsóknir skulu berast fyrir miðnætti 15. mars 2026.

Stjórn Vísinda- og rannsóknarsjóðs (áður B-hluti Vísindasjóðs) auglýsir eftir umsóknum úr sjóðnum. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Mínar síður á þar til gerðu eyðublaði ásamt fylgiskjölum fyrir miðnætti 15. mars 2026.

Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu 2025.

Hér fyrir neðan má nálgast umsóknareyðublað sem skila þarf inn ásamt fylgiskjölum í gegnum Mínar síður. Nánari upplýsingar, þar á meðal úthlutunarreglur sjóðsins, er að finna á vefsvæði Vísinda-og rannsóknarsjóðar. Fyrirspurnir varðandi umsóknir má senda á [email protected].

Miðvikudaginn 5. mars næstkomandi milli kl. 14:00 og 16:00 verður haldið hagnýtt námskeið um hvernig á að gera vandaða umsókn í Vísinda- og rannsóknarsjóð. Námskeiðið er frítt og verður haldið bæði í sal Fíh á Suðurlandsbraut 22 og í fjarfundi, nánari upplýsingar má nálgast í hlekk hér að neðan.