Fara á efnissvæði
Frétt

Opnunartími skrifstofu Fíh

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar hjúkrunarfræðingum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar.

Skrifstofa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lokar mánudaginn 22. desember kl. 16:00 og verður lokuð milli jóla og nýárs.

Skrifstofan opnar aftur föstudaginn 2. janúar 2025 kl. 10:00.

Bókanir orlofshúsa í apríl opna laugardaginn 3. janúar kl. 9:00. Frá og með áramótum munu sjóðfélagar einnig geta keypt þrjú gjafabréf Icelandair í stað tveggja áður. Áfram er hægt að bóka og afbóka orlofshús í gegnum Orlofsvefinn.

Sé um mjög brýnt erindi að ræða má hafa samband við formann félagsins í netfangið [email protected].