
Umsögn um drög að reglugerð um skólaheilsugæslu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) fagnar því að unnið sé að reglugerð um heilsuvernd skólabarna. Mikilvægt er að reglugerðin taki mið af reynslu þeirra sem sinna þjónustunni og þörfum barna og ungmenna og stuðli þannig að samræmdri framkvæmd hennar um allt land.




