Fara á efnissvæði
Símenntun Háskólans á Akureyri - Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Frétt

Sérkjör fyrir félagsfólk Fíh hjá SMHA

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Símenntun Háskólans á Akureyri (SMHA) hafa gert með sér samning sem veitir félagsfólki Fíh 85% afslátt af völdum námskeiðum hjá SMHA á haustmisseri.

Námskeiðin hafa verið valin með það að markmiði að sem flest félagsfólk geti nýtt þau til að efla þekkingu sína og færni í starfi. Jafnframt getur félagsfólk sótt um endurgreiðslu frá Starfsþróunarsetri Fíh (StFíh) fyrir þeim 15% námskeiðsgjaldsins sem það greiðir sjálft.

Eftirfarandi námskeið verða í boði á þessum kjörum:

Innri þróunarmarkmið – hvernig innri velferð leiðir til ytri grósku

Foreldri og ungbarn – tengslamiðuð nálgun fagaðila

Jákvæð leiðtogafærni í starfi og lífi

Heildræn öndun

Fleiri námskeið kunna að bætast við þennan lista á samningstímanum.

20% afsláttur af öðrum námskeiðum SMHA

Auk sérvalinna námskeiða hér að ofan fær félagsfólk Fíh 20% afslátt af öðrum námskeiðum SMHA. Sá afsláttur gildir óháð því hvenær skráning fer fram og er án sérstakrar niðurgreiðslu eða greiðsluþátttöku Fíh.

Námsleiðir frá University of Highlands and Islands (UHI) eru undanskildar 20% afslættinum.

Skráning og afsláttarkóðar

SMHA útbýr afsláttarkóða fyrir félagsfólk Fíh sem notaðir eru við skráningu á námskeið. Kóðarnir verða aðgengilegir á „Mínum síðum“ Fíh.

Afsláttarkóðarnir eru eingöngu ætlaðir félagsfólki Fíh og er öðrum óheimilt að nota þá. Fíh annast staðfestingu á félagsaðild.

Skráning

Til að skrá sig þarf einfaldlega að smella á eitt af námskeiðunum hér fyrir ofan eða á vef Símenntunar HA.

Nýr notandi þarf að setja inn netfang, smella á Halda áfram
Sé notandi þegar til í kerfinu skal smella á Fara í innskráningu.

Þegar þú skráir þig þarftu að setja þína eigin kennitölu í reitinn Kennitala greiðanda.

Afsláttarkóði er sleginn inn í síðasta skrefi skráningarferlisins Greiðsla og staðfesting.

Fyllið út í stjörnumerkta * reiti
Setja á afsláttarkóðann í reitinn Afsláttarkóði. Afsláttarkóðann má finna á Mínum síðum.

Staðfesting á skráningu berst á netfang þátttakenda

Afskráning

Afskráning skal berast á netfang Símenntunar HA [email protected]

Breyting á námskeiði
Símenntun HA áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp.