Fara á efnissvæði
Frétt

Skipulag sumarorlofs þarf að liggja fyrir 31. mars

Skipulag sumarorlofs þarf að liggja fyrir 31. mars ár hvert. Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til 15. september, en hjá starfsfólki sveitarfélaga er það frá 15. maí til 30. september.

Í kjarasamningum hjúkrunarfræðinga við ríkið, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga er öllum hjúkrunarfræðingum tryggður 30 daga orlofsréttur, óháð líf- og starfsaldri.

Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til 15. september, en hjá starfsfólki sveitarfélaga er það frá 15. maí til 30. september. Starfsfólk á rétt á að fá allt að 30 daga orlof, þar af 15 daga samfellda á sumarorlofstímabili, enda verði því við komið vegna starfa stofnunar.

Taka skal orlof fyrir lok orlofsársins, þ.e. fyrir 30. apríl ár hvert. Hjúkrunarfræðingar eiga rétt á því að taka sumarfrí óháð því hvort viðkomandi eigi rétt á launum í orlofi.

Flutningur orlofs milli orlofsára

Samkvæmt orlofslögum er flutningur orlofs milli orlofsára óheimill og í kjarasamningum er jafnframt ákvæði sem kveður á um ákveðna fyrningu orlofs.

Þeir hjúkrunarfræðingar sem eiga uppsafnað orlof eru hvattir til að taka samtal sem fyrst við sinn yfirmann um flutning orlofs milli orlofsára.

Hægt er að nálgast sérstakt eyðublað hjá þeim starfsmönnum sem starfa hjá bæði ríki og Reykjavíkurborg til þess að óska eftir flutningi orlofs á milli orlofsára.

Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að nýta sinn 30 daga orlofsrétt og taka nauðsynlega hvíld frá störfum.