Fara á efnissvæði
Frétt

Skortur á kennurum í hjúkrunarfræði ógnar framtíð mönnunar heilbrigðisþjónustunnar 

Nýlegt stefnuágrip (policy brief) frá Alþjóðaráði hjúkrunarfræðinga (ICN) varpar ljósi á vaxandi skort á háskólakennurum í hjúkrunarfræði á heimsvísu og þau áhrif sem hann hefur á getu menntastofnana til að útskrifa nægjanlegan fjölda hjúkrunarfræðinga.

Samkvæmt skýrslunni er skortur á kennurum einn af lykilþáttum þess að erfitt reynist að bregðast við alþjóðlegum skorti á hjúkrunarfræðingum.

Þessi staða á einnig við hér á landi. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðideildir Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri hafa ítrekað bent á að skortur sé á háskólakennurum í hjúkrunarfræði og að stór hópur núverandi kennara sé að nálgast starfslok á næstu árum. Þessi þróun vekur áhyggjur um getu háskólanna til að mæta aukinni þörf fyrir menntun nýrra hjúkrunarfræðinga og viðhalda jafnframt gæðum námsins.

Í stefnuágripi ICN kemur fram að kennarar í hjúkrunarfræði gegna lykilhlutverki við að byggja upp framtíðarhjúkrunarfræðinga, styrkja rannsóknir og þróa fagið. Þar er jafnframt bent á að öldrun kennarahópsins, mikið vinnuálag og takmarkaður aðgangur að hæfu starfsfólki til kennslu hafi skapað alvarlegar áskoranir víða um heim.

Nauðsynlegt að styrkja akademískar starfsleiðir

Til að tryggja endurnýjun og fjölgun háskólakennara í hjúkrunarfræði telur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mikilvægt að skapa umhverfi sem hvetur fleiri hjúkrunarfræðinga til framhaldsnáms og rannsókna. Eitt af þeim úrræðum sem hefur verið bent á er að hjúkrunarfræðingar á Íslandi öðlist starfsleyfi að lokinni 3+2 leið í hjúkrunarfræði sem líkur með meistaragráðu. Með því að tengja starfsleyfi við meistarapróf skapast sterkari hvati til frekara náms, þar á meðal doktorsnáms. Fjölgun hjúkrunarfræðinga með doktorsmenntun er ein mikilvægasta forsenda þess að fjölga háskólakennurum í hjúkrunarfræði, efla rannsóknastarf og tryggja að nægjanlegur fjöldi hæfra kennara sé til staðar fyrir komandi kynslóðir hjúkrunarfræðinga.

Menntun er lykill að sjálfbærri mönnun hjúkrunarfræðinga

Í stefnuágripi ICN er bent á að ekki sé hægt að leysa skort á hjúkrunarfræðingum einungis með því að fjölga nemendum. Samhliða þarf að tryggja nægan fjölda kennara, leiðbeinenda og akademískra starfsleiða svo hægt sé að viðhalda gæðum menntunar og byggja upp sjálfbæra mönnun hjúkrunarfræðinga til framtíðar.

Hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar verða ekki til án þeirra sem mennta þá. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telur því nauðsynlegt að efla akademíska innviði hjúkrunarfræðinnar, fjölga háskólakennurum og skapa sterkari hvata til framhaldsnáms og rannsókna í hjúkrunarfræði. Að öðrum kosti er hætta á að skortur á háskólakennurum í hjúkrunarfræði verði flöskuháls í menntun hjúkrunarfræðinga og þar með í uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar sjálfrar.