Vegna mikillar þátttöku hjúkrunarfræðinga um allan heim hafa skipuleggjendur ráðstefnunnar ákveðið að loka fyrir skráningu á ráðstefnu Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga í Helsinki kl. 16:00 á íslenskum tíma í dag, 29. maí.
Ef þú átt eftir að skrá þig á ráðstefnuna þá mælum við með því að klára það núna, einnig minnum við á skráninguna á norrænu móttökuna.