Fara á efnissvæði
Frétt

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stendur fyrir könnun um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) stendur nú fyrir könnun á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði í samstarfi við aðildarfélög BHM, Byggingafræðingafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Verkfræðingafélag Íslands. Könnunin er framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

Markmið könnunarinnar er að draga fram heildstæða mynd af stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði. Þrátt fyrir að háskólamenntun hafi lengi verið talin trygg leið að stöðugleika og góðum lífskjörum bendir þróunin til þess að sífellt fleiri eigi erfitt með að tryggja sér öruggt og viðráðanlegt húsnæði.

Aðgangur að grunnþáttum lífsgæða, fæði, klæði og húsnæði er forsenda velferðar. Skortur á einum þessara þátta veikir undirstöður samfélagsins og dregur úr möguleikum fólks til virkrar atvinnuþátttöku.

Í könnuninni er leitast við að varpa ljósi á þær áskoranir sem háskólamenntað fólk stendur frammi fyrir, svo sem við fyrstu fasteignakaup eða á leigumarkaði. Niðurstöðurnar skapa mikilvægan grunn fyrir hagsmunabaráttu stéttarinnar og undirbyggja málflutning okkar í samtali við stjórnvöld um nauðsynlegar úrbætur í húsnæðismálum.

Hvetjum hjúkrunarfræðinga til þátttöku

Könnunin hefur verið send í tölvupósti til hjúkrunarfræðinga á vinnumarkaði.

Sameinumst um að varpa ljósi á stöðuna, félagsfólki okkar og komandi kynslóðum háskólamenntaðra til hagsbóta.

Við hvetjum alla hjúkrunarfræðinga til að gefa sér tíma til að taka þátt.