Markmið samningsins er fyrst og fremst að skapa hjúkrunarfræðingum aukin tækifæri til að efla hæfni sína og þróast áfram í starfi. Starfsþróunarkerfið er mikilvæg hagsbót fyrir alla hlutaðeigandi, enda er sí- og endurmenntun lykilþáttur í starfi hjúkrunarfræðinga.
Jafnframt er um mikilvægt réttlætismál að ræða fyrir hjúkrunarfræðinga stofnunarinnar, þar sem hjúkrunarfræðingar á landsbyggðinni eiga að búa við starfsþróunarkerfi í samræmi við það sem þekkist hjá öðrum ríkisstofnunum.
Í kjölfar undirritunar kjarasamninga hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagt ríka áherslu á að klára endurnýjun stofnanasamninga við alla viðsemjendur, og er þeirri vinnu nær lokið.





