Þjónustukönnunin er gerð í samstarfi við Maskínu og hafa allir hjúkrunarfræðingar sem eru skráðir í félagið fengið tölvupóst eða sms um að taka þátt. Spurt er út í ýmsa þætti sem tengjast þjónustu félagsins við hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að taka þátt, könnunin tekur á bilinu 5 til 7 mínútur.
Þeir sem hafa ekki fengið könnunina senda en vilja taka þátt geta haft samband í gegnum [email protected].





