Til að fá tilnefningu sem heiðursfélagi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þarf viðkomandi hjúkrunarfræðingur að hafa lagt eitthvað sérstakt, einstakt eða mikilvægt að mörkum til hjúkrunarsamfélagsins eða skjólstæðinga þess á sviði menntunarmála, félagsmála, þróunar hjúkrunar eða innleiðingu nýrrar þekkingar í hjúkrun.
Félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem eru með fulla aðild, fagaðild eða lífeyrisaðild geta hlotið tilnefningu til heiðursfélaga.
Tilnefningar þurfa að berast skriflega með rökstuðningi og stuðningi 30 félagsmanna á rafrænu formi til formanns félagsins í netfangið [email protected] a.m.k. átta vikum fyrir aðalfund á þar til gerðu eyðublaði sem finna má hér fyrir neðan.
Síðasti skiladagur er 24. mars 2026.





