Fara á efnissvæði
Umsögn

Umsögn um breytingu á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga innan Fíh fagna því að fram er komin tillaga að breytingum á lögum er taka til sölu og neyslu vara sem innihalda nikótín, þar á meðal nikótínpúðar.

Efni: Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 87/20118 um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur)

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga innan Fíh fagna því að fram er komin tillaga að breytingum á lögum er taka til sölu og neyslu vara sem innihalda nikótín, þar á meðal nikótínpúðar. Rannsóknir sýna að neysla á nikótínpúðum hefur aukist meðal ungmenna sem Fíh og fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga telur vera ákveðið áhyggjuefni.

Fíh telur að sömu lög og reglur eigi að gilda um neyslu, sölu, markaðssetningu og aðgengi vara sem innihalda nikótín þar á meðal nikótínpúðar eins og gilda um annað
tóbak. Með því móti er hægt að hafa heildstæðar og skýrar reglur varðandi vörur sem innihalda nikótín þar sem lögð er áhersla á forvarnir og eftirlit með sölu, markaðs-setningu, aðgengi og hvar megi og megi ekki nota þær.

Fíh telur sérstaklega mikilvægt að koma í veg fyrir að börn og unglingar byrji að nota vörur sem innihalda nikótínvörur þar á meðal nikótínpúðar sem í framhaldinu getur haft skaðleg áhrif. Því ætti fyrsta stigs forvarnir að vera forgangsatriði varðandi löggjöf um vörur sem innihalda nikótínvörur eins og nikótínpúðar. Mikilvægt er að missa ekki niður þann einstaka árangur sem náðst hefur í tóbaksvörnum hér á landi.