Fara á efnissvæði
Umsögn

Umsögn um breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi nr 1089/2012

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) þakkar fyrir að hafa fengið boð um að gera umsögn um breytingar á framangreindri reglugerð. Fíh hefur kynnt sér breytingarnar og hefur eftirfarandi athugasemdir.

Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi nr 1089/201

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) þakkar fyrir að hafa fengið boð um að gera umsögn um breytingar á framangreindri reglugerð. Fíh hefur kynnt sér breytingarnar og hefur eftirfarandi athugasemdir.

Í 4.gr reglugerðarbreytingarinnar um skilyrði fyrir sérfræðileyfi kemur fram að til að ljósmóðir geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5.gr skuli hún uppfylla m.a. eftirfarandi kröfu: ,, Að loknu sérfræðinámi skv. 2. tölulið skal hún hafa starfað undir leiðsögn sérfræðiljósmóður á sérsviðinu. Leiðsagnartímabilið skal vera 2 ár og miða skal við fullt starf. Sé starfshlutfall lægra, lengist starfstíminn sem því nemur. Skilyrði er að ljósmæðurnar starfi á sama stað og þar skal skipulögð handleiðsla að jafnaði eiga sér stað vikulega í um klukkutíma í senn.“

Fíh gerir athugasemd við það skilyrði að ljósmóðir í sérfræðivegferð og sérfræðiljósmóðir á viðkomandi sérsviði starfi á sama vinnustað. Slíkt skilyrði getur útilokað ljósmæður á landsbyggðinni frá sérfræðivegferð, enda er þar ekki alltaf starfandi sérfræðiljósmóðir á viðkomandi sviði. Fíh tekur undir áhyggjur Ljósmæðrafélags Íslands. Fíh telur jafnframt hættu á að ákvæðið geti orðið fordæmisgefandi og haft sambærileg áhrif á hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni, þar sem sérfræðingar í hjúkrun eru fáir eða jafnvel engir á einstökum starfsstöðvum. Fíh hvetur því eindregið til þess að ákvæðið verði endurskoðað og útfært með þeim hætti að tryggt sé jafnt aðgengi að sérfræðivegferð ljósmæðra, óháð búsetu og starfsstöð, með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.

Ljóst er að núgildandi reglugerð endurspeglar ekki það nám eða þá prófgráðu sem nú er krafist sem skilyrði fyrir starfsleyfi ljósmæðra og hefur ekki gert það um nokkurra ára skeið. Fíh hefur því skilning á því að talið sé rétt að færa reglugerðina til samræmis við núverandi fyrirkomulag náms og þær kröfur sem gerðar eru til starfsleyfis ljósmæðra. Jafnframt vekur tímasetning breytingarinnar nokkra athygli í ljósi þess að þetta ósamræmi hefur verið til staðar um árabil og nú þegar liggja fyrir áform um frekari breytingar á námi í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði. Fíh telur brýnt að reglugerðin verði endurskoðuð að nýju þegar fyrirhugaðar breytingar á náminu hafa tekið gildi og kennsla samkvæmt breyttu námsfyrirkomulagi er hafin. Með því verði tryggt að ákvæði reglugerðarinnar endurspegli með skýrum og réttum hætti það nám og þær prófgráður sem á hverjum tíma liggja til grundvallar veitingu starfsleyfis ljósmæðra.

Virðingarfyllst, 

Helga Rósa Másdóttir, formaður,

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga