Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um drög að reglugerð um heilsugæslu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur kynnt sér drög að reglugerð um heilsugæslu. Jákvætt er að í drögum að reglugerð um heilsugæslu er lögð áhersla á þverfaglega, samfellda og gagnreynda þjónustu. Slík nálgun er mikilvæg og samræmist þeim áherslum sem einkenna nútíma heilsugæslu.
Fíh tekur undir umsögn Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands um að drögin endurspegli ekki nægilega hlutverk hjúkrunarfræðinga, einkum sérfræðinga í hjúkrun, innan heilsugæslunnar. Sérfræðingar í hjúkrun gegna mikilvægu hlutverki við að samþætta fræðilega þekkingu, klíníska framkvæmd og þróun þjónustu og styrkja þannig heilsugæsluna sem vettvang klínískrar kennslu, nýsköpunar og þekkingarsköpunar.
Fíh telur jafnframt mikilvægt að reglugerðin kveði með skýrari hætti á um hlutverk hjúkrunar í heilsugæslunni, meðal annars á sviði heilsueflingar, forvarna, meðferðar og eftirfylgdar langvinnra sjúkdóma, geðheilbrigðis, öldrunarþjónustu, heimahjúkrunar, heilsuverndar skólabarna í grunn- og framhaldsskólum, mæðraverndar og ung- og smábarnaverndar. Slík skýring myndi samræma reglugerðina betur núverandi skipulagi og þróun heilsugæslunnar og endurspegla gagnreynda þekkingu um að skýrt skilgreint hlutverk hjúkrunar stuðli að bættum gæðum, betri samfellu þjónustu, auknu aðgengi og hagkvæmari nýtingu mannauðs.
Í 10. gr. er fjallað um heilbrigðisþjónustu í heimahúsum fyrir einstaklinga sem hennar þarfnast, þar sem heimahjúkrun gegnir lykilhlutverki innan þverfaglegrar þjónustu. Fíh tekur undir mikilvægi þverfaglegrar samvinnu en telur jafnframt nauðsynlegt að skýrt komi fram að fagleg forysta heimahjúkrunar sé á hendi hjúkrunarfræðinga og sérfræðinga í hjúkrun. Það endurspeglar eðli þjónustunnar, þar sem hjúkrunar- og umönnunarþarfir eru að jafnaði meginforsenda þess að einstaklingar þarfnist heilbrigðisþjónustu í heimahúsum.
Í 11. gr. reglugerðardraganna er lagt til að embætti landlæknis fari með yfirumsjón útgáfu faglegra leiðbeininga. Fíh bendir á að lögbundið hlutverk embættisins samkvæmt lögum nr. 41/2007 felist fyrst og fremst í stefnumótun, gæðamálum og eftirliti með heilbrigðisþjónustu, fremur en þróun og innleiðingu klínískra leiðbeininga. Fíh telur mikilvægt að þróun, útgáfa, innleiðing og regluleg endurskoðun faglegra leiðbeininga sé áfram nátengd klínísku starfsumhverfi, þar sem sérfræðiþekking verður til og gagnreynd þekking er innleidd í daglega framkvæmd. Ábyrgð á faglegum leiðbeiningum um framkvæmd þjónustu innan hvers þjónustustigs ætti því að hvíla á viðkomandi þjónustustigi og byggja á sérþekkingu þeirra sem þar starfa.
Jafnframt telur Fíh að embætti landlæknis eigi að hafa leiðandi hlutverk við að skýra verkaskiptingu og ábyrgð milli þjónustustiga, í nánu samráði við heilsugæslu, sjúkrahús og sérfræðiþjónustu. Þannig verði tryggt samræmi á landsvísu án þess að rjúfa tengsl milli stefnumótunar og klínískrar framkvæmdar.
Í 11. gr. reglugerðardraganna er kveðið á um skipun fagráðs heilsugæslu sem ætlað er að vinna að stefnumótun og stuðla að samhæfingu og tengslum við aðrar heilbrigðisstofnanir sem reka heilsugæslustöðvar. Fíh telur mikilvægt að reglugerðin tryggi að fagráðið sé skipað fulltrúum ólíkra faghópa innan heilsugæslunnar, þannig að fjölbreytt fagþekking og sjónarmið endurspeglist í störfum ráðsins. Fíh leggur jafnframt áherslu á að hjúkrunarfræðingar eru fjölmennasta heilbrigðisstétt landsins og bera ábyrgð á veigamiklum hluta þeirrar þjónustu sem veitt er innan heilsugæslunnar. Í ljósi þess telur félagið eðlilegt að hjúkrunarfræðingar gegni leiðandi hlutverki í fagráði heilsugæslunnar og að þátttaka þeirra í stefnumótun og faglegri þróun heilsugæslunnar sé í samræmi við umfang ábyrgðar þeirra og mikilvægi í þjónustunni.
Virðingarfyllst,
Helga Rósa Másdóttir, formaður,
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga





