Fara á efnissvæði
Umsögn

Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fjármálaáætlun 2027-2031.

Heildarniðurstaða umsagnarinnar er að verulegt misræmi sé milli yfirlýstra markmiða stjórnvalda um eflingu heilbrigðisþjónustu og því sem birtist í áætluninni.

Fjárveitingar til reksturs heilbrigðiskerfisins nægja ekki til að viðhalda óbreyttu ástandi

Þegar litið er til fjárveitinga til heilbrigðiskerfisins er gagnlegt að líta til fjárfestinga annars vegar og reksturs hins vegar, en mikilvægt er að styrkja báða þessa þætti þegar efla á kerfið í heild sinni. Það er til lítils að reisa nýjar byggingar fyrir heilbrigðisstarfsemi ef ekki er tryggt að til sé fjármagn til að ráða hæft starfsfólk til vinnu. Mönnun hefur verið ein helsta áskorun heilbrigðiskerfisins og er til mikils að vinna með tryggri umgjörð sem hæft fólk sækir í hvað varðar starfsaðstöðu en einnig hvað varðar kjör, álag og metnaðarfullt starfsumhverfi.