Fara á efnissvæði
Alþingi Íslendinga
Umsögn

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr.80/2002 (útivistartími)

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur kynnt sér frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr.80/2002 (útivistartími). Fíh er fag- og stéttarfélag. Innan félagsins starfa fjölmargar fagdeildir sem hver um sig stuðlar að þróun og eflingu síns sérsviðs. Ein þeirra er fagdeild svefnhjúkrunar, en markmið hennar er að efla þekkingu hjúkrunarfræðinga á svefni og svefnhjúkrun, þar á meðal forvörnum, fræðslu, meðferð svefnvanda og eflingu svefnheilsu. Við gerð þessarar umsagnar naut undirrituð ráðgjafar fagdeildarinnar.

Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr.80/2002 (útivistartími)

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur kynnt sér frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr.80/2002 (útivistartími). Fíh er fag- og stéttarfélag. Innan félagsins starfa fjölmargar fagdeildir sem hver um sig stuðlar að þróun og eflingu síns sérsviðs. Ein þeirra er fagdeild svefnhjúkrunar, en markmið hennar er að efla þekkingu hjúkrunarfræðinga á svefni og svefnhjúkrun, þar á meðal forvörnum, fræðslu, meðferð svefnvanda og eflingu svefnheilsu. Við gerð þessarar umsagnar naut undirrituð ráðgjafar fagdeildarinnar.

Svefn er mikilvægur fyrir andlega - og líkamlega heilsu og nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska barna. Í skýrslu embættis landlæknis kemur fram að of mörg íslensk ungmenni nái ekki ráðlögðum svefni og sofi minna en evrópskir jafnaldrar þeirra.

Í fyrirhuguðu frumvarpi er lagt til að börn níu ára og yngri megi vera úti yfir vetrartímann til kl. 20, börn 10–12 ára til kl. 21 og börn 13–16 ára til kl. 22. Undanþága gildir fyrir eldri hópinn þegar börn eru á heimleið úr skóla-, íþrótta- eða frístundastarfi. Yfir sumartímann lengist útivistartíminn samkvæmt nánari ákvæðum frumvarpsins Fyrirhuguð breyting styttir mögulegan svefnglugga 10–12 ára barna að vetri til úr tíu klukkustundum í níu. Þá er miðað við að börnin sofni einni klukkustund eftir heimkomu og vakni einni klukkustund fyrir skólabyrjun. Ráðlögð svefnlengd barna á þessum aldri er 9–11 klukkustundir.

Löggjöf sem ætlað er að styðja velferð og hvíld barna ætti að endurspegla raunverulega svefnþörf þeirra. Fíh getur því ekki mælt með því að útivistartími 10–12 ára barna verði lengdur um eina klukkustund að vetri til. Núgildandi fyrirkomulag tekur þegar tillit til heimferðar úr skóla-, íþrótta- og frístundastarfi. Jafnframt leggur Fíh til að upplýsingar um útivistartíma barna verði ávallt kynntar samhliða ráðleggingum um svefnþörf þeirra.

Fíh fagnar því að samræma eigi útivistatíma yfir sumartímann betur að skólaári.

Virðingarfyllst, 

Helga Rósa Másdóttir, formaður,

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga