Fara á efnissvæði
Umsögn

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu - Fækkun nefnda

Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (nr. 40/2007) - Fækkun nefnda

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) þakkar boð um að skila umsögn um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, sem miðar að fækkun nefnda sem meta faglega hæfni stjórnenda innan heilbrigðisstofnana.

Fíh leggur áherslu á mikilvægi þess að rödd hjúkrunarfræðinga heyrist skýrt og greinilega en þeir eru ein af meginstoðum heilbrigðisþjónustunnar. Hjúkrunarfræðingar gegna þýðingarmiklu hlutverki í öllum lögum stjórnkerfisins, tryggja og veita heildræna og örugga heilbrigðisþjónustu, eru næstir sjúklingum og hafa einstaka innsýn í þarfir þeirra. Kostir þess að hafa hjúkrunarfræðinga sem stjórnendur hefur margsýnt sig og því er nauðsynlegt að hjúkrunarfræðingar eigi áfram fulltrúa á öllum stigum kerfisins, svo sérfræðiþekking þeirra og reynsla fái notið sín við stefnumótun og ákvarðanatöku.

Tryggja verður að lágmarkskröfur séu gerðar um faglega hæfni í æðstu stöður heilbrigðisþjónustunnar og telur Fíh nauðsynlegt að við stöðuveitingar stjórnenda eigi að gera kröfu um sérfræðimenntun, að lágmarki meistaramenntun eins og t.d. í leiðtogastöður í hjúkrun, sambærilegt og gert er við lækna. Því miður er nú þegar raunin ekki sú (tilvísun í nýlegar ráðningar í nýjar forstöðumannastöður á Landspítala) og er það vissulegagjaldfelling á þeirri þekkingu sem leiðtogar og stjórnendur þurfa að hafa til að geta sinnt svo mikilvægum störfum. Einnig ýtir það undir misræmi á kröfum um hæfi stjórnenda sem annars gegna sambærilegum stöðum.

Fíh leggur áherslu á að hjúkrunarfræðingar eigi að hafa fulltrúa í öllum nefndum og ráðum sem meta faglega hæfni stjórnenda innan heilbrigðisstofnana, enda forystuhlutverk hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðisþjónustunnar viðamikið og mikilvægt.

Fíh hefur áhyggjur af því að fækkun nefnda án tryggingar fyrir áframhaldandi þátttöku hjúkrunarfræðinga gæti veikt rödd þeirra innan stjórnkerfisins og mun það að mati félagsins bitna á gæðum þjónustunnar. Jafnframt verði þá ekki tryggt að sérfræðimenntun og -þekking í viðeigandi stjórnendastöður verði til staðar, sem annars eru á sama stjórnendastigi innan stofnana óháð fagstétt. Við aukið sjálfræði forstjóra við val á aðferðum við hæfnismat er hætta á að þessi sjónarmið fái ekki sama vægi eins og þegar hefur gerst. Því er mikilvægt að tryggja þátttöku hjúkrunarfræðinga í slíkum ákvörðunum.

Að lokum leggur Fíh áherslu á mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar haldi áfram að vera virkir þátttakendur í ákvörðunum innan heilbrigðisþjónustunnar og að staða þeirra sem málsvarar sjúklinga verði styrkt enn frekar.