Fara á efnissvæði
Umsögn

Umsögn um Lokaskýrslu starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um Lokaskýrslu starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun, mál nr.S-234/2024

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) þakkar fyrir að fá tækifæri til að veita umsögn um Lokaskýrslu starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun, mál nr.S-234/2024.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) vill koma á framfæri athugasemd varðandi skaðaminnkun sem hluta af heildrænni heilbrigðisþjónustu, en í skýrslunni segir að ekki sé verið að fjalla um þá heilbrigðisþjónustu sem lýtur að forvörnum, meðferð eða endurhæfingu, enda er það sú heilbrigðisþjónusta sem getur tekið við þegar skaðaminnkun sleppir.

Á öðrum stað kemur fram stefna og aðgerðir í skaðaminnkun sé ekki aðskilin heildarstefnu yfirvalda í áfengis-og vímuvörnum sem enn sé í mótun. Einnig að ekki sé um aðskildar stefnur að ræða heldur verði víxlverkun þeirra á milli.

Þar sem uppfærð heildarstefna yfirvalda í áfengis og vímuvörnum hefur ekki verið birt hefur Fíh áhyggjur af því að áhersla á skaðaminnkun gangi svo langt að hún skyggi á þá nálgun sem snýr að meðferð og endurhæfingu vímuefnaháðra einstaklinga. Mikilvægt er að jafnvægi ríki milli forvarna, meðferðarúrræða og skaðaminnkunar, svo að heilbrigðiskerfið geti tryggt samfellu í þjónustu sinni og veitt einstaklingum raunverulegt val um bætt líf og heilsu.

Fíh þykir miður að heildarstefna um áfengis- og vímuvarnir skuli ekki vera birt samtímis þessari góðu skýrslu, sér í lagi á tímum sem vímuvarnir eiga undir högg að sækja.