Fara á efnissvæði
Frétt

Ungt fólk á bið – hádegisfundur um námslán, húsnæði og fjárhagslegt sjálfstæði

Hvernig gengur ungu háskólamenntuðu fólki að koma undir sig fótunum? Þeirri spurningu verður meðal annars velt upp á hádegisfundi BHM og Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) í Norræna húsinu þriðjudaginn 10. nóvember.

BHM og Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) standa fyrir hádegisfundi með yfirskriftina „Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis“ í Norræna húsinu 10. nóvember kl. 11:30–13:30.

Húsið opnar kl. 11:30 með léttum hádegisverði. Fundurinn hefst kl. 12:00 og verður í streymi á heimasíðu BHM og öðrum fréttamiðlum (en ekki á Teams).

Fundurinn er framhald af morgunverðarfundi BHM 27. ágúst, þar sem kynntar voru niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði. Könnunin var unnin fyrir aðildarfélög BHM ásamt Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands og Verkfræðingafélagi Íslands.

Nú verður sjónum sérstaklega beint að ungu fólki og þeim hindrunum sem það mætir á leiðinni frá námi til fjárhagslegs sjálfstæðis, meðal annars vegna námslána, vinnu með námi og stöðunnar á húsnæðismarkaði.

Aðildarfélög BHM, félagsfólk og starfsfólk, ásamt þátttökufélögum könnunarinnar, eru eindregið hvött til að skrá sig og taka þátt í þessu mikilvæga samtali. Félögin eru jafnframt hvött til að áframsenda upplýsingarnar til félagsfólks síns.

Skráning og nánari upplýsingar um hádegisfundinn


DAGSKRÁ

11:30 – Húsið opnar

Boðið verður upp á léttan hádegismat.

12:00 – Opnunarávarp

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

– Hagkorn BHM: Hver kemst inn og hver bíður? Ungt fólk á húsnæðismarkaði

Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingar BHM

– Hver er staða ungs fólks á húsnæðismarkaði?

Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS

Pallborð: Hvernig getum við stytt leiðina til sjálfstæðis?

  • Ragnar Þór Ingólfsson, félags – og húsnæðismálaráðherra
  • Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti LÍS
  • Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu

Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir.

13:30 – Samantekt og fundarslit