Fundurinn var haldinn 4. febrúar síðastliðinn á Grand Hótel Reykjavík og Teams. Farið var yfir rök með og á móti því að breyta námi í hjúkrunarfræði hér á landi þannig að starfsleyfi byggi á þriggja ára B.S. námi og tveggja ára M.S. námi í stað fjögurra ára B.S. náms.
Farið var yfir forsöguna, framtíðarsýn hjúkrunarfræðináms og sjónarhorn hagaðila, í kjölfarið fóru fram pallborðsumræður.





