Fara á efnissvæði
Umsögn

Umsögn um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi

Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi (meðalhófsprófun, EES-reglur) 103. Mál.

Staðfesta má starfsleyfi hjúkrunarfræðinga frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss eða veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá fyrrgreindum ríkjum. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi hjúkrunarfræðings sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur undir ósk BHM um aukin skýrleika og afstöðu þar til bærra stjórnvalda á sviði heilbrigðismála, að þau lýsi sinni sýn og afstöðu hvernig þau sjá fyrir sér framkvæmd meðalhófsprófunar og efni reglugerðar gagnvart heilbrigðisstéttum og þá einkum hjúkrunarfræðinga.