Auglýsingaherferðin er gerð í samstarfi við auglýsingastofuna Hér&Nú og samanstendur af sjónvarpsauglýsingu, auglýsingaskiltum, útvarpsauglýsingum og vefauglýsingum.
Sjónvarpsauglýsingin var frumsýnd föstudagskvöldið 24. apríl á RÚV.
Tökur fóru fram fyrr á þessu ári á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, alls koma fram um þrjátíu hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar í auglýsingunum. Óskað var eftir áhugasömum hjúkrunarfræðingum til að koma fram en hátt í annað hundrað hjúkrunarfræðingar gáfu kost á sér.





