Listi yfir heiðursfélaga
Bjarney Samúelsdóttir (1893-1991), sæmd 1969 fyrir margra ára dygga og góða þjónustu í þágu hjúkrunarmála.
Sigríður Bachmann (1901-1990), sæmd 1981 fyrir langt og farsælt forystustarf við Hjúkrunarskólann og Landspítala.
Þorbjörg Jónsdóttir (1917-2005), sæmd 1981 fyrir langa og farsæla forystu í menntunarmálum hjúkrunarstéttarinnar.
Guðrún Árnadóttir (1916-2012), sæmd 1988 fyrir langt og farsælt starf að hagsmuna- og félagsmálum hjúkrunarfræðinga.
María Pétursdóttir (1919-2003), sæmd 1988 fyrir langt og farsælt starf að menntunar- og félagsmálum hjúkrunarfræðinga.
Elísabet Erlendsdóttir (1899-1993), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Guðríður Jónsdóttir (1903-1997), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir (1923-2022), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Marie Lysnes, Noregi, (1906-2004), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Sigrún Magnúsdóttir (1899-1989), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Sigurlín M. Gunnarsdóttir (1927-2019), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Systir Hildegardis (1910-2000), sæmd 1989 fyrir brautryðjendastörf að hjúkrunarmálum.
Vigdís Finnbogadóttir (1930-), sæmd 1994 fyrir framlag í þágu hjúkrunarfræðinga og forystuhlutverk að mótun hjúkrunarþjónustu í landinu.
Ingibjörg Gunnarsdóttir (1927-2016), sæmd 1997 fyrir farsæl störf að málefnum hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar um árabil.
Vigdís Magnúsdóttir (1931-2023), sæmd 1999 fyrir áhuga, velvild, hvatningu og skilning á hjúkrunarfræði og málefnum hjúkrunar.
Guðrún Marteinsson (1924-2011), sæmd 2003 fyrir áhuga, velvild, hvatningu og skilning á hjúkrunarfr. og málefnum hjúkrunar.
María Finnsdóttir (1922-2017), sæmd 2003 fyrir framlag til menntunar og rannsóknarstarfa hjúkrunarfræðinga.
Bergljót Líndal (1934-), sæmd 2005 fyrir farsælt starf að félagsmálum hjúkrunarfræðinga.
Pálína Sigurjónsdóttir (1931-2018), sæmd 2005 fyrir farsælt starf að félagsmálum hjúkrunarfræðinga.
Sigþrúður Ingimundardóttir (1946-), sæmd 2005 fyrir framlag til menntunnar og félagsstarfa hjúkrunarfræðinga.
Guðrún Guðnadóttir (1929-2015), sæmd 2007 fyrir farsælt starf að félagsmálum hjúkrunarfræðinga.
Sólveig Guðlaugsdóttir (1936-), sæmd 2008 fyrir langt og farsælst frumkvöðlastarf í geðhjúkrun barna og unglinga.
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir (1955-), sæmd 2019 fyrir fyrir framlag í þágu hjúkrunarfræðinga og hjúkrunar.
Anna Stefánsdóttir (1947-), sæmd 2019 fyrir framlag til þróunar hjúkrunar.
Ásta Möller (1957-), sæmd 2019 fyrir framlag til félagsstarfa fyrir hjúkrunarfræðinga.
Bergdís Kristjánsdóttir (1943-), sæmd 2019 fyrir framlag til söfnunar og varðveislu sögulegra muna og minja sem tengjast hjúkrun.
Bryndís Konráðsdóttir (1952-), sæmd 2019 fyrir framlag til þróunar hjúkrunar.
Eyrún Björg Jónsdóttir (1953-), sæmd 2019 fyrir brautryðjandastarf í hjúkrun.
Kristín Auður Sophusdóttir (1952-), sæmd 2019 fyrir framlag til þróunar krabbameinshjúkrunar.
Lovísa Baldursdóttir (1954-), sæmd 2019 fyrir framlag til þróunar hlutverks sérfræðings í hjúkrun.
Marga Thome (1942-), sæmd 2019 fyrir framlag að menntunarmálum hjúkrunarfræðinga, rannsóknum og þekkingarsköpun í hjúkrun.
Vilborg Ingólfsdóttir (1948-), sæmd 2019 fyrir framlag til félagsstarfa fyrir hjúkrunarfræðinga.





