Hlutverk og ábyrgð landsvæðadeildar
Landsvæðadeild vinnur að framgangi hjúkrunar á sínu landsvæði. Hlutverk hennar er að veita félagsmönnum sínum fræðslu og efla fag-og félagsheils á svæðinu. Hver landsvæðadeild setur sér starfsreglur þar sem fram kemur m.a. tilgangur og markmið deildarinnar. Hún skal vera stjórn og nefndum félagsins til ráðgjafar sbr. 12.gr. laga Fíh.
Tengsl við fagsvið Fíh
Landsvæðadeildir tilheyra fagsviði Fíh. Sviðstjóri fagsviðs boðar til fundar með formönnum landsvæðadeilda a.m.k. tvisvar á ári. Skal þar vera vettvangur umræðna, samstarfs og upplýsingamiðlunar milli landsvæðadeilda og fagsviðs Fíh.
Fundirnir skulu haldnir að vori og hausti ár hvert.
Stjórn landsvæðadeildar skal tilkynna sviðstjóra fagsviðs Fíh um nýkjörna stjórn hennar svo og allar breytingar sem verða á henni á kjörtímabilinu.
Ársskýrsla
Landsvæðadeild skal skila skýrslu um starfsemi sína til sviðstjóra fagsviðs Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert.
Þjónusta félagsins
- Allir formenn landsvæðadeilda fá netfang sem tengt er viðkomandi landsvæðadeild og endar á @hjukrun.is. Til þess að það virki þarf að tilkynna skrifstofu félagsins um formannaskipti og netföng þeirra, svo hægt sé að tengja það innan @hjukrun.is
- Allur póstur landsvæðadeilda sem berst á skrifstofuna er áframsendur vikulega til formanns deildarinnar.
- Prentun félagalista fyrir landsvæðadeildir.
- Tekið er við umsóknum um inngöngu í landsvæðadeild og áframsent til formanns viðkomandi deildar. Þegar búið er að samþykkja nýja félaga eru þeir færðir í félagaskrá.
- Uppfærsla frá hagstofu á félagaskrá landsvæðadeilda.
- Færsla efnis inn á vefsvæði félagsins frá landsvæðadeildum.
- Senda út póst á netföng eftir netfangaskrá landsvæðadeildar.
- Aðstoð við ljósritun á fréttabréfi og öðrum bæklingum í lit. Beiðni um aðstoð þarf að berast með nokkra daga fyrirvara.
Hvernig á að stofna landsvæðadeild?
Félagsmönnum, þó að lágmarki 25, er heimilt að stofna deild á ákveðnu landsvæði. Félagsmenn, sem annaðhvort búa eða starfa á svæðinu geta skráð sig í viðkomandi deild. Þátttaka í landsvæðadeild er valkvæð.
Fyrirhuguð landsvæðadeild setur sér starfsreglur sem eru byggðar á starfsreglum landsvæðadeilda Fíh sem stjórn Fíh hefur samþykkt.
Starfsreglur væntanlegrar landsvæðadeildar skulu lagðar fyrir aðalfund Fíh til samþykktar.
Senda þarf starfsreglur væntanlegrar landsvæðadeildar til stjórnar Fíh a.m.k. 4 vikum fyrir aðalfund.
Samþykki aðalfundur stofnun fyrirhugaðrar landsvæðadeildar skal senda skriflega staðfestingu þar um til þess aðila sem sendi inn beiðni um stofnun viðkomandi deildar.
Hvernig á að leggja niður landsvæðadeild?
Ákvörðun um slit deildarinnar skal taka á aðalfundi með ¾ hlutum greiddra atkvæða og renna eignir deildarinnar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Skili deildin ekki ársskýrslu til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins tekið ákvörðun um slit deildarinnar.
Sniðmát starfsreglna
Kafli I – Nafn deildar og tilgangur
1 gr. Nafn
Nafn deildar er Deild hjúkrunarfræðinga < í/á nafn landsvæðis > innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga2.gr. Tilgangur
Tilgangur deildarinnar er <bæta inn tilgangi og markmiði deildarinnar>
Deildin heyrir undir fagsvið Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.Kafli II – Aðild
3. gr. Aðild
Rétt til aðildar að deildinni eiga hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem <bæta inn skilyrðum fyrir aðild að deildinni>4. gr. Umsókn um aðild
Umsókn um aðild að deildinni skal berast til stjórnar deildarinnar.5. gr. Úrsögn
Úrsögn úr deildinni er hægt að skila skriflega til stjórnar. Einnig getur stjórn litið á það sem úrsögn ef félagsmaður hefur ekki greitt árgjald deildarinnar tvö ár í röð.Kafli III – Skipulag deildar
6. gr. Lög
Deildin heyrir undir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og lög félagsins eru lög deildarinnar.7. gr. Aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum deildarinnar. Aðalfund skal halda ár hvert og skal til hans boða með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannarlegum hætti. Aðalfundur telst löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.8. gr. Stjórn
Stjórn deildarinnar skal skipuð fimm félagsmönnum, kjörnum á aðalfundi, til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmeðlimir skipta með sér hlutverkum gjaldkera, ritara og tveggja meðstjórnenda. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn. Kosning skal vera skrifleg og leynileg ef fleiri en einn félagi býður sig fram til sama embættis. Meirihluti aðalfundar ræður kjöri. Kjöri skal þannig háttað að aldrei gangi fleiri en þrír kjörnir stjórnendur auk varamanna úr stjórn hverju sinni.9. gr. Dagskrá aðalfundar
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
- Reglubreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
10. gr. Félagsgjald
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi og endurskoðuð árlega.
11. gr. Slit deildar
Ákvörðun um slit deildarinnar skal taka á aðalfundi með ¾ hlutum greiddra atkvæða og renna eignir deildarinnar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Skili deildin ekki ársskýrslu til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins tekið ákvörðun um slit deildarinnar.Kafli IV – Ársskýrsla, reikningar og endurskoðun
12. gr. Ársskýrsla
Deildin skal skila skýrslu um starfsemi sína til sviðsstjóra fagsviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir lok marsmánaðar ár hvert.13. gr. Reikningar og endurskoðun
Reikningstímabil deildar skal miðast við <áramót eða aðalfund ár hvert>. Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga úr röðum félagsmanna.Kafli VI – Gildistaka
14. gr. Gildistaka
Starfsreglur þessar öðlast gildi þegar þær hafa verið samþykktar á sérstaklega boðuðum stofnfundi deildarinnar.