Ertu farin að huga að starfslokum?
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga heldur reglulega námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem eru farnir að huga að starfslokum. Námskeiðin eru auglýst á vef félagsins. Í svokallaðri Lífeyrisgátt lífeyrissjóða getur þú nálgast upplýsingar um lífeyrisrétt þinn í lífeyrissjóðum á Íslandi.
Greiðsla til lífeyrissjóðs
Öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi er skylt að tryggja sér lífeyrisréttindi með aðild að lífeyrissjóði frá og með 16 ára til 70 ára aldurs. Auð auki kjósa margir að greiða í séreignasjóð (sjá viðbótarlífeyrissparnaður hér að neðan). Helsti ávinningur af lífeyrissjóðsaðild er:
- Ellilífeyrir til æviloka
- Örorku- og barnalífeyrir ef sjóðfélagi missir starfsgetu og verður fyrir sannanlegum tekjumissi vegna veikinda- og slysa.
- Maka- og barnalífeyrir við fráfall sjóðfélaga
- Möguleiki á lánum frá lífeyrissjóði
Viðbótalífeyrissparnaður
Í kjarasamningum hjúkrunarfræðinga er ákvæði um að launagreiðendur greiði 2% af launum starfsmanna sinna sem mótframlag við viðbótarlífeyrissparnað þeirra enda sé framlag launamanns a.m.k. 2%. Greiðsla viðbótalífeyris er valkvæð og getur numið 2% til 4% af heildarlaunum. Framlag vinnuveitanda er í báðum útfærslum 2%. Ýmist er hægt að geyma viðbótarlífeyrissparnað hjá lífeyrissjóðum, bönkum, sparisjóðum, verðbréfafyrirtækjum eða líftryggingafélögum.
- Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. Upplýsingar um lífeyrismál hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríki.
- Brú - Lífeyrissjóður sveitarfélaga. Upplýsingar um lífeyrismál hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá sveitarfélögum.
- Listi yfir alla lífeyrissjóði á Íslandi á Lífeyrisgáttinni.
Lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
Lög nr. 1/1997 um lífeyrisjóð starfsmanna ríkisinsÁ upplýsingavef Landssamtaka lífeyrissjóða er að finna greinargóða umfjöllun um lífeyrismál.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins Á vefsvæði LSR er að finna allar upplýsingar um lífeyrismál hjúkrunarfræðinga, bæði A-deild og B-deild: www.lsr.is
Brú - Lífeyrissjóður sveitarfélaga https://www.lifbru.is/
Lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
Lög nr. 1/1997 um lífeyrisjóð starfsmanna ríkisins
Á upplýsingavef Landssamtaka lífeyrissjóða er að finna greinargóða umfjöllun um lífeyrismál.