- Dagsetning
- 30. apríl 2026
16:30 Dagskrá - venjuleg aðalfundarstörf
Fundarstjóri valinn og val borið undir fundinn til samþykktar
· Skýrsla stjórnar
· Gjaldkeri leggur fram ársreikning
· Kosið um árgjald
· Kosinn formaður – Framboð: Jónína Sg.
· Kosin stjórn – Framboð: Guðrún Árný, Kolbrún S., Sigríður H., Agnes. (Fundarstjóri kannar hvort fleiri framboð verða á fundinum).
(Ný stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund)
· Kosinn skoðunarmaður reikninga og varamaður
Framboð: Elfa Dröfn og Guðrún Hlín
· Tillögur að breyttum starfsreglum – (ef berast til stjórnar)
· Önnur mál
Fundi slitið
Samræðufundur kl. 17-19 yfir léttum málsverði.
1. Bryndís Halldórsdóttir hjúkrunarfræðingur BS, MS og klínískur sérfræðingur í hjúkrun
kynnir Norrænu lungnaráðstefnuna, NLC2026 sem verður haldin í Hörpu í byrjun júní.
Ráðstefnan er samstarfsverkefni Fagdeildar lungnahjúkrunar og Félags lungnalækna
og hefur undanfarin ár verið haldin á 10-13 ára fresti.
2. Dr. Helga Jónsdóttir kynnir spennandi nýjungar í framhaldsnámi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
3. Faglegar og frjóar samræður um önnur mál sem á okkur hvíla.
Samræðufundi slitið í síðasta lagi klukkan 19:00.





