Fara á efnissvæði
Viðburður

Aðalfundur Fagdeildar um samþætta hjúkrun

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 16. mars 2026, klukkan 17:00 - 19:00 í húsnæði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, Reykjavík.

Dagsetning
16. mars 2026
Tími
17:00 - 19:00
Staðsetning
Salur Fíh, Suðurlandsbraut 22, Reykjavík

Dagskrá aðalfundar

I. Almenn aðalfundarstörf

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla formanns.
  3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
  4. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
  5. Árgjald ákveðið.
  6. Önnur mál. Stjórnin er með tillögu um það að taka út eftirfarandi tvo þætti undir 3. grein markmiða fagdeildar:

a. Að hafa yfirsýn yfir það starf sem unnið er á sviði samþættra meðferða innan heilbrigðiskerfisins.

b. Að halda saman upplýsingum um meðferðaraðila, nám þeirra, starfstíma og vinnustað.

II. Erindi - Nýttu mátt öndunarinnar á einfaldan og áhrifaríkan hátt.

Fyrirlesari: Lilja Sigríður Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Þetta er fræðandi og hagnýtur fyrirlestur þar sem þú lærir hvernig dagleg öndun getur orðið öflugt verkfæri í lífi þínu. Dregur úr kvíða, bætir svefn, styrkir sjálfið, ýtir undir hugmyndir og eykur framkvæmdagleði til muna. Kynntar verða rannsóknartengdar upplýsingar um öndunartækni Art of Living – Part 1, þar á meðal SKY-öndun (Sudarshan Kriya). Í fyrirlestrinum verða kenndar einfaldar og áhrifaríkar öndunaræfingar: Bastrika (fýsibelgjaröndun) – veitir kraft og orku, Nasal Prana Jama (nef-orkujöfnun) og 10 mínútna leidd íhugun. - Yoga Nidra.

Lilja er hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands. Hún hefur unnið á gjörgæslum á Íslandi, Noregi, Sviss, Grænlandi, ásamt öðrum deildum, mest þá skurðdeildum (líka vegna stríða), í Taílandi, Pakistan, Haíti, og í Englandi í London. Sérnám hennar eru m.a: Heilari Brofhmann. 2006, öndunarkennaranám 2009 og 2022 hjá Art of Living, jóga kennaranám 400 stundir hjá Art of Living, Höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferðaraðili, 2008 – 2020, ferðamálafræðingur frá Ferðamálaskóla Íslands 2023 og skóli lífsins.

Léttar veitingar eru í boði. Öll velkomin.

Fundurinn verður einnig í fjarfundi, hlekkur á fjarfundinn verður sendur út til fagdeildarmeðlima fyrir fundinn.

Hlökkum til þess að sjá ykkur, Stjórnin