Fara á efnissvæði
Viðburður

Aðalfundur Öldungadeildar

Aðalfundur Öldungadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 19. mars n.k. á Hótel Natura og hefst kl. 14.

Dagsetning
19. mars 2026
Tími
14:00
Staðsetning
Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir)

Dagskrá aðalfundar

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
  4. Árgjald ákveðið
  5. Breytingar á hlutverki og starfsreglum deildarinnar
  6. Stjórnarkjör
  7. Kosning skoðunarmanna
  8. Önnur mál

Að loknum aðalfundarstörfum koma gestir til okkar.

Lilja Stefánsdóttur hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri Hringbrautarverkefnisins hjá Landspítala, fjallar um nýjustu fréttir af framgangi byggingu nýs Landspítala.

Þá mun Kristín Svava Tómasdóttir rithöfundur lesa úr nýútkominni bók sinni Fröken Dúlla, en þar rekur hún ævisögu Jóhönnu Knudsen, sem kom við sögu í siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimstyrjaldar.

Skráning þátttöku er með hefðbundnum hætti með því að leggja inn á reikning öldungadeildarinnar kr 2700,- .

Kennitala og reikningsnúmer öldungadeildarinnar er eftirfarandi:

Kennitala: 691093 2639. Reikningsnúmer: 526 14 120000