- Dagsetning
- 17 - 18. september 2026
- Tími
- 08:30 - 16:00
- Staðsetning
- Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
- Verð
- 65.000 kr.
Námskeiðið Áhugahvetjandi samtal samanstendur af fræðilegri yfirferð með áherslu á verklegar æfingar. Farið verður yfir helstu þætti áhugahvetjandi samtals og fólki gefið tækifæri að æfa þær undir handleiðslu kennara. Farið yfir fræðilegan bakgrunn, grunnhugmyndir og lögð er áhersla á gagnvirkar æfingar.
Fagfólk sem tileinkar sér þessa aðferð eflir færni sína í að aðstoða fólk í að breyta hegðun. Mikilvægt einkenni áhugahvetjandi samtals er einnig að forðast ákveðnar leiðir í samtalinu sem eru til þess fallnar að ýta undir mótþróa og draga úr vilja til breytinga. Borin er virðing fyrir sjálfstæði skjólstæðingsins, rétti hans og getu til að taka eigin ákvarðanir innan viðeigandi marka hverju sinni.
Reynsla þeirra sem hafa lært og notað áhugahvetjandi samtal er að vinnan verður skemmtilegri og árangursríkari, sem getur dregið úr líkum á kulnun í starfi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að umrædd nálgun ber árangur bæði í bráðaþjónustu og meðferðarvinnu.
Á námskeiðinu er farið yfir fræðilegan bakgrunn, grunnhugmyndir og áhersla er lögð á æfingar. Fjallað er um kóðun á samtalsbútum og greiningarkerfið MITI kynnt, en það kerfi tryggir gæði í framkvæmdinni og að aðferðin sé notuð rétt.
Þátttakendur skila inn mislöngum samtalsbútum (á starfrænu formi) til greiningar að loknu námskeiði og fá endurgjöf því tengdu.
Um leiðbeinanda
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun, hlaut þjálfun í áhugahvetjandi samtali bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum og hefur kennt það frá 2009. Helga Sif er aðjúnkt og klínískur lektor við Háskóla Íslands. Hún starfar í heilbrigðisráðuneytinu en var áður deildarstjóri á geðsviði Landspítala, Helga Sif hlaut fálkaorðu fyrir störf sín árið 2021.





