Fara á efnissvæði
Viðburður

Ganga á alþjóðlegum degi hjúkrunarfræðinga

Þriðjudaginn 12. maí er alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga og af því tilefni ætlar Fíh að standa fyrir hressandi viðburði. Við ætlum að ganga saman í Heiðmörk milli kl. 17 og 19.

Dagsetning
12. maí 2026
Tími
17:00-19:00
Staðsetning
Borgarstjóraplan, Heiðmörk

Aðalatriðið er að hittast og hafa gaman saman, hreyfa sig úti í náttúrunni og njóta stundarinnar. Hvetjum alla hjúkrunarfræðinga til að mæta, það þarf ekki að skrá sig bara mæta á staðinn.

Tvær vegalengdir verða í boði þannig að allir geta fundið gönguleið sem hentar þeim. Léttar veitingar í boði Fíh.

Fíh hvetur hjúkrunarfræðinga um allt land til að koma saman og stunda heilsueflandi útiveru og hafa gaman saman á alþjóðlegum degi hjúkrunarfræðinga þann 12. maí.

12. maí er dagurinn okkar, gerum okkur glaðan dag saman.