Fara á efnissvæði
Viðburður

Félagsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Félagsfundur í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn mánudaginn 17. nóvember kl. 16:30–18:00 á Hilton Reykjavík Nordica, sal A á jarðhæð, og á Teams.

Dagsetning
17. nóvember 2025
Tími
16:30 - 18:00
Staðsetning
Hilton Reykjavík Nordica, salur A og Teams

Fundarefnið eru umræður um afstöðu félagsins til þátttöku þess í samstöðufundi um Þjóð gegn þjóðarmorði.

Félagsfundurinn er opinn öllum hjúkrunarfræðingum með fulla aðild, fagaðild, lífeyrisaðild og nemendum í hjúkrunarfræði sem fá greitt samkvæmt kjarasamningi Fíh.

Til að hafa atkvæðisrétt á fundinum þarf að skrá sig. Skráning var opin til kl. 12:00 sama dag og fundur fer fram.

Við skráningu er óskað eftir að tekið sé fram undir „Aðrar upplýsingar“ hvort þátttakandi hyggist mæta á staðinn eða taka þátt í gegnum streymi.

Hægt er að tengjast fundinum í gegnum Mínar síður, sjá hlekk á bláa borðanum efst á forsíðu.